Óstöðvandi í NBA deildinni með giftingarhringinn sinn á skónum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. maí 2023 11:01 Nikola Jokic með Magic Johnson bikarinn sem hann fékk fyrir að vera kosinn mikilvægastur í úrslitaeinvígi Vesturdeildar NBA. AP/Ashley Landis Nikola Jokic var ekki kosinn mikilvægasti leikmaður NBA deildarinnar í körfubolta þriðja árið í röð en hann hefur sýnt og sannað mikilvægi sitt í úrslitakeppninni.
Denver Nuggets er komið í úrslitaeinvígið í fyrsta sinn í sögu félagsins og það ekki síst fyrir frammistöðu serbneska miðherjans. View this post on Instagram A post shared by Bleacher Report (@bleacherreport) Jokic er 211 sentímetrar á hæð en leiklestur hans og frábærar sendingar gerir mótherjum hans mjög erfitt fyrir. Liðsfélagarnir elska líka að spila með honum enda fá þeir boltann oftast um leið og þeir koma sér í færi. Jokic varð sá fyrsti í sögunni til að ná átta þrennuleikjum í sömu úrslitakeppni og hann var með 27,8 stig, 14,5 fráköst og 11,8 stoðsendingar að meðaltali þegar Nuggets sló úr Lakers 4-0 í úrslitum Vesturdeildarinnar. Það vita kannski ekki allir að Jokic heiðrar eiginkonu sína með sérstökum hætti í hverjum leik. Hann má ekki spila með giftingarhringinn á hendinni en vill alls ekki skilja við hann og bindur hann því í staðinn í reimarnar á skónum sínum. Jókerinn giftist æskuást sinni Nataliju Macesic í Serbíu í október 2020. Þau hafa verið saman frá árinu 2013 (síðan hann var átján ára) og eiga saman dótturina Ognjena sem kom í heiminn árið 2021. View this post on Instagram A post shared by @officialnbabuzz
NBA Mest lesið Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik Körfubolti Schauffele hélt út og tryggði sér sigur með fugli á átjándu Golf Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Fótbolti „Þetta eru tvö dúndurlið“ Körfubolti Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Fótbolti „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Körfubolti Fleiri fréttir Indiana Pacers í úrslit Austurdeildarinnar eftir sigur í oddaleik „Þetta eru tvö dúndurlið“ „Þarf að sjá eld í staðinn fyrir einhverja hræðslu“ Uppgjör: Njarðvík - Keflavík 71-81 | Keflvíkingar nálgast titilinn Martin og félagar einum sigri frá undanúrslitum Dallas komið í úrslit Vestursins Elvar stigahæstur í grátlegu tapi Indiana svaraði fyrir og knúði fram oddaleik Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Valsmenn endurheimta Kára á besta tíma Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Martin og félagar hófu úrslitakeppnina á stórsigri 92 prósent sigurvegara leiks eitt frá árinu 2011 hafa orðið Íslandsmeistarar „Það helltust yfir mann bara alls konar tilfinningar“ Jafnaði met mömmu sinnar 29 árum síðar Stærsta tap meistara í sögu úrslitakeppninnar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Doncic rankaði við sér og Dallas einum sigri frá úrslitum Vestursins Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Coach K aðstoðar Lakers í þjálfaraleit Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Jokic tók við MVP-styttunni og sýndi svo hver er bestur Óbein yfirlýsing frá DeAndre Kane Sjá meira