Telur líklegt að skjálftahrinan deyi út á næstu dögum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 28. febrúar 2021 18:51 Skjálfti að stærð 3,9 varð rétt fyrir utan Grindavík í dag. Vísir/Vilhelm Kristín Jónsdóttir, jarðskjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir enn óljóst hvort dragi úr jarðskjálftum á Reykjanesskaga á næstu dögum eða hvort von sé á enn stærri skjálftum og jafnvel eldgosi. Hún telur þó líklegt að skjálftahrinan deyi út í næstu viku. „
Staðan er bara sú að við erum í miðri hrinu það hefur verið jarðskjálftavirkni á þremur stöðum í dag og hefur verið að færast aðeins í norðaustur, frá Fagradalsfjalli og nær Keili. Þar hafa mestu átökin verið,“ sagði Kristín í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Það er greinilega mikil spennulosun í gangi þar og þetta hefur sést áður. Við höfum séð það síðustu öld að það hafa orðið miklar hrinur þar. Það voru skjálftar í nótt við Trölladyngju og svo um hádegisbil voru skjálftar mjög nálægt Grindavík sem fundust vel þar,“ segir Kristín. Hún segir eðlilegt að fólki bregði þegar skjálftar eru komnir svo nálægt byggð, en upptök skjálftans nærri Grindavík í dag var aðeins um kílómetra frá byggð. „En sem betur fer voru þessir skjálftar ekki stærri en 3,9. Við auðvitað vonum að þeir haldi sér fjarri byggð en það er erfitt að spá í framhaldið,“ segir Kristín. Líklegt að hrinan deyi út á næstu dögum Hún segir stöðuna þá sömu og síðustu daga. Enn er óljóst hvort dragi úr skjálftahrinunni, hvort eldgos sé í vændum eða hvort von sé á stærri skjálftum. „Þetta er áfram bara svipuð staða, við erum áfram að fylgjast með þessari virkni og erum að gera ráð fyrir því að hún geti færst eitthvað til áfram og ennþá er þessi sviðsmynd inni að það geti komið stærri skjálftar,“ segir Kristín. Hún telur þó líklegt að það sé ekki mikið eftir af skjálftahrinunni. „Það er líklegt að þetta séu ekki margir dagar. Mér finnst líklegast að þetta deyi út í næstu viku,“ segir Kristín. Hún segir þó mikilvægt að muna að á Reykjanesi sé skjálftavirkni mikil, enda flekaskil á skaganum. „Jarðskjálftavirkni þarna hættir náttúrulega ekkert þar sem þarna eru flekaskil. Við sjáum það í gegn um söguna að það eru endurtekin átök á nokkurra ára fresti þannig að ég held að við verðum að vera undir það búin að þetta gerist aftur,“ segir Kristín.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Tengdar fréttir Eldfjallahópur háskólans vill ekki útiloka kvikuhreyfingar á meira dýpi Eldfjalla- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur skoðað eldgosavá á Reykjanesskaga frá árinu 2001. Hópurinn segir engin skýr ummerki um kvikuhreyfingar í grynnsta hluta skorpunnar, það er efstu fimm til sex kílómetrar. 28. febrúar 2021 17:37 Mælir gegn gönguferðum á Keili vegna skjálfta Kristín Jónsdóttir, jarðvásérfræðingur, mælir ekki með gönguferðum á Keili vegna skjálfta sem nú ganga yfir. 28. febrúar 2021 16:59 Skjálfti að stærðinni 4,3 nú síðdegis Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hann yfir 4,3 að stærð og upptökin einn kílómetra vestur af Keili. 28. febrúar 2021 16:31 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Fleiri fréttir Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Papa's Pizza, verkföll flugvallarstarfsmanna og óvæntur forsetaframbjóðandi Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Framboð Viktors Traustasonar er gilt Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Afkoma borgarinnar versnar um níu milljarða króna milli ára Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Útimarkaðurinn í Mosó hættir Atli Þór ráðinn til Pírata: „Við ætlum að koma flokknum í ríkisstjórn“ Biðlistinn á Stígamótum styttist í fyrsta sinn í þrjú ár Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Áfram landris og óvissa um framhaldið Tryggja þurfi tímabundin afnot náttúruauðlinda í stjórnarskrá Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest „Það er norskur sigur í dag“ Grindvíkingar opna bakarí og veitingastað á ný Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Seinni umferð biskupskjörs hefst á hádegi í dag Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka Sjá meira
Eldfjallahópur háskólans vill ekki útiloka kvikuhreyfingar á meira dýpi Eldfjalla- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur skoðað eldgosavá á Reykjanesskaga frá árinu 2001. Hópurinn segir engin skýr ummerki um kvikuhreyfingar í grynnsta hluta skorpunnar, það er efstu fimm til sex kílómetrar. 28. febrúar 2021 17:37
Mælir gegn gönguferðum á Keili vegna skjálfta Kristín Jónsdóttir, jarðvásérfræðingur, mælir ekki með gönguferðum á Keili vegna skjálfta sem nú ganga yfir. 28. febrúar 2021 16:59
Skjálfti að stærðinni 4,3 nú síðdegis Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu rétt í þessu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var hann yfir 4,3 að stærð og upptökin einn kílómetra vestur af Keili. 28. febrúar 2021 16:31