Óvæntar vendingar á Spáni í dag Aron Guðmundsson skrifar 3. júní 2023 22:30 Fernando Alonso lenti í smá basli á heimavelli á Aston Martin bíl sínum í dag Vísir/Getty Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari ökumanna í Formúlu 1 og ökumaður Red Bull Racing, verður á rásspól í Spánarkappakstrinum sem fram fer á morgun.
Þetta varð ljóst eftir að Hollendingurinn setti hraðasta hringinn í tímatökum fyrr í dag. Þó það séu kannski ekki óvænt tíðindi, miðað við yfirburði Red Bull Racing á yfirstandandi tímabili, þá koma næstu menn á eftir Verstappen úr nokkuð óvæntri átt. Carlos Sainz, ökumaður Ferrari sem hefur mátt muna sinn fífil fegurri það sem af er tímabili, ræsir annar á morgun og næst á eftir honum er að finna Lando Norris á bíl McLaren. Pierre Gasly, ökumaður Alpine, setti fjórða hraðasta tímann í síðustu umferð tímatökunnar en hann fékk síðan í hendurnar sex sæta refsingu fyrir að hafa í tvígang þvælst fyrir öðrum ökumönnum á hröðum hring. Sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton á bíl Mercedes ræsir fjórði en Sergio Perez (Red Bull Racing) og Fernando Alonso (Aston Martin, aðal keppinauta Verstappen í stigakeppni ökumanna er ekki að finna á meðal fremstu manna. Alonso ræsir áttundi en í kjölfar rigningar á brautarsvæðinu missti hann stjórn á bíl sínum og endaði utan brautar. Á þeirri stundu urðu skemmdir á undirvagni bíls hans sem ekki tókst að laga að fullu. Perez datt úr leik í tímatökum í annarri umferð. Honum tókst með naumindum að komast áfram úr fyrstu umferð og í þeirri annarri endaði hann utan brautar undir lokin, skemmdi dekkjagang sinn og mun ræsa ellefti á morgun. Það stefnir því allt í ansi áhugaverðan Formúlu 1 kappakstur á Spáni á morgun en ætla má, miðað við yfirburði Verstappen á tímabilinu til þessa að lítil spenna muni ríkja um fyrsta sæti kappakstursins.
Akstursíþróttir Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ Íslenski boltinn „Höfum spilað vel án Arons áður“ Handbolti Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Handbolti Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Íslenski boltinn Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Formúla 1 Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins Körfubolti Fleiri fréttir Loksins landaði Lando sigri í Formúlu 1 Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Skilur af hverju fólk hættir að horfa á leiðinlega Formúlu 1 Verstappen vann í Kína Verstappen átján sætum á undan Hamilton á ráspólnum á morgun Hamilton segir enn langt í það að hann hætti Verstappen aftur á sigurbraut eftir árekstur á fyrsta hring Liðsfélagarnir fremstir eftir tímatökur í Japan Fjórfaldi heimsmeistarinn íhugar að hætta við að hætta Eigandi Formúlu 1 festir kaup á MotoGP Sjá meira