Fótbolti

Sjáðu mörk Mbappés gegn Bayern og laglegan sprett Chilwells

Sindri Sverrisson skrifar
Kylian Mbappé fagnar fyrra marki sínu gegn Bayern í gær.
Kylian Mbappé fagnar fyrra marki sínu gegn Bayern í gær. Getty/Alexander Hassenstein

Það voru sjö mörk skoruð í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld, í stórleik Bayern München og PSG í Þýskalandi og í viðureign Porto og Chelsea á Spáni. Mörkin má nú sjá hér á Vísi.

Þó að Bayern München hafi átt ótalmargar marktilraunir þá var það PSG sem skoraði fleiri mörk og vann 3-2 sigur. Kylian Mbappé skoraði fyrsta markið með góðri aðstoð Neymars, og Marquinhos slapp við rangstöðu og jók muninn í 2-0.

Bayern náði þó að jafna metin, með mörkum frá Eric Choupo-Moting og Thomas Müller, áður en að Mbappé skoraði seinna markið sitt.

Klippa: Mörk Bayern og PSG

Chelsea er í enn betri stöðu en PSG, í rimmu sinni við Porto eftir 2-0 útisigur í gær. Leikurinn fór reyndar fram í Sevilla á Spáni vegna kórónuveirufaraldursins, og þar verður seinni leikur liðanna einnig, næsta þriðjudag.

Mason Mount skoraði fyrra mark Chelsea í gær eftir laglegan snúning, og Ben Chilwell nýtti sér varnarmistök til að skora seinna markið eftir afar lipran sprett.

Klippa: Mörk Chelsea gegn Porto



Fleiri fréttir

Sjá meira


×