Gestur Traustason viðskiptafræðingur sem búsettur er í Seljahverfi hefur búið í hverfinu í yfir 20 ár. Hann fer lofsamlegum orðum um heiðarleika Breiðholtsbúa sem sannaði sig í enn eitt skiptið eftir að hann hafði gleymt bíllykli sínum í skránni á bílhurðinni. Gestur skrifar um þetta í Facebook-hópinn Íbúasamtökin Betra Breiðholt og segir:
„Í morgun heyrði ég þegar einhverju var laumað inn um bréfalúguna mína. Reyndust vera bíllyklarnir sem ég gleymdi í skránni þegar ég læsti bílnum með fangið fullt af drasli seinnipartinn í gær. Bíllinn var búinn að standa á stóru plani þar sem tugir labba hjá. Þrátt fyrir það var hvorki búið að fara inn í bílinn né taka hann ófrjálsri hendi.
Sá sem kom lyklunum til mín reyndist vera nágranni minn. Vissi að ég var á þessum gráa. Lagði lykkju á leið sína til að koma lyklunum á réttan stað.
Svona í ljósi þess hve jafnvel við á þessari síðu geta talað neikvætt um Breiðholtið þá held ég að þetta dæmi sé meira lýsandi fyrir hverfið en margt annað. Breiðholtið í mínum huga er hverfi með góðum nágrönnum, og það að nærumhverfið er gott gerir gott að búa hér.“
Í stuttu spjalli við DV kvaðst Gestur hafa flutt í Breiðholtið fyrir „óvart“ árið 1999. Hann flutti úr Sörlaskjólinu í Vesturbænum. „Við erum mjög ánægð og sátt hér. Við ætluðum aldrei yfir Elliðaárnar en fasteignasalinn benti á að við færum þá réttum megin hér.“
Innlegg Gests í íbúahópinn vekur góð viðbrögð og margir aðrir vitna um náungakærleik og heiðarleika Breiðholtsbúa og eru þær lýsingar hugsanlega eitthvað á skjön við neikvæðar fréttir úr hverfinu. Þar ber að hafa í huga að hverfið er stórt með íbúafjölda yfir 20 þúsund manns. Að mati þeirra íbúa sem taka þátt í þessum umræðum er heiðarleiki reglan en ekki undantekning í hverfinu.
Einn íbúinn skrifar:
„Breiðhyltingar eru upp til hópa besta fólk sem hugsar um nágranna sína og stundar óumbeðið nágrannavörslu, hlúir að börnum sem meiða sig etc. Meira að segja unglingarnir í hverfinu hafa sýnt óvenjumikla hjartagæsku skv. minni reynslu, þó auðvitað sé alltaf einn og einn svartur sauður inn á milli.“
Kona ein segir frá afar fallegu atviki sem lýsir fyrirmyndarframkomu unglinga í hverfinu:
„Fyrir viku datt kona kylliflöt fyrir framan Pólsku búðina, allt úr veskinu fór út um allt. Það voru 3 unglingar sem hjálpuðu henni, reistu hana upp opgvildu endilega hringja á sjúkrabíl. Týndu allt upp í veskið hennar og höfðu virkilegar áhyggjur af henni. Það má þakka það sem vel er gert. Unglingarnir í Breiðholti (Fellahverfi) eru ekki verri en aðrir unglingar. Takk strákar mínir fyrir hjálpina.“