Bjart og kalt í dag og von á næstu lægð í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2023 06:55 Umhleypingar eru framundan. Vísir/Vilhelm Veðurstofan reiknar með strekkingssuðvestanátt norðantil á landinu fram eftir morgni, en að annars megi búast við hægum vindi í dag. Bjart veður og kalt.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að næsta lægð komi í kvöld með austan strekking og úrkomu fyrst sunnantil, en norðantil í nótt. Frost á landinu í dag verður á bilinu eitt til átta stig. Það hlánar svo verður hiti á morgun á bilinu þrjú til átta stig með strekkingssuðvestanátt og skúrum. „Við fáum svo skammvina norðanátt með éljum annað kvöld og aðra nótt, en það léttir víða til og lægir þegar kemur fram á miðvikudag og frystir aftur. Útlit fyrir öflugri lægð á fimmtudag með stífri sunnanátt og talsverðri rigningu og hlýindum. Þessi hlýindi verða þó skammvinn því við fáum strax í kjölfarið hressilegan útsynning með éljum. Við fáum svo endurtekið efni um næstu helgi ef spár ganga eftir. Það er því óhætt að segja að umhleypingar séu framundan,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðvestlæg átt 8-15 m/s og rigning með köflum, en lengst af bjart fyrir austan. Hlýnandi, hiti 1 til 7 stig. Snýst í vestan og norðvestanátt með skúrum eða éljum seint um kvöldið. Á miðvikudag: Norðvestanátt, víða 8-15 og él á Norður og Austurlandi, en lægir og léttir til síðdegis. Bjart sunnan- og vestanlands, en vaxandi sunnanátt og þykknar upp vestantil seinnipartinn. Frost 0 til 7 stig. Á fimmtudag: Suðlæg átt 10-18 og talsverð rigning, en úrkomuminna norðaustantil. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast norðaustanlands. Gengur í hvassa suðvestanátt vestantil með skúrum og síðar éljum um kvöldið og fer hratt kólnandi. Á föstudag: Stíf vestanátt með éljum og hiti um og undir frostmarki. Á laugardag: Útlit fyrir vestanátt og dálítil él, en gengur í suðaustanátt með snjókomu eða rigningu en úrkomuminna norðaustantil. Hlýnandi veður. Á sunnudag: Útlit fyrir sunnanátt með snjókomu, slyddu eða rigningu og hlýnandi veðri, en lengst af þurrt og frost fyrir austan.
Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Innlent Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Innlent Helga lenti einnig í vandræðum Innlent Harvey Weinstein lagður inn á spítala Erlent Líklegt að það styttist í brotmörk Innlent Gefur lítið fyrir útskýringar fréttastjórans Innlent Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Innlent Uppgangur Höllu Hrundar fari fyrir brjóstið á „valdastéttinni“ Innlent „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Lægð nálgast landið úr austri Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Sól og allt að þrettán gráður í borginni Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum Hægur vindur og sólríkt veður Hiti að þrettán stigum Siggi stormur lofar hlýju og sólríku sumri Gul viðvörun á Norðurlandi eystra Víða blautt í dag og varað við asahláku Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Enn verður kalt í dag Hlýnar um helgina Fer að snjóa sunnan- og vestantil Hríðarveður og erfitt yfirferðar á Norðurlandi í dag Norðanátt og víða él á landinu Víða dálítil snjókoma eða él Hvöss austanátt syðst á landinu Bætir í vind og úrkomu í nótt Skýjað að mestu en úrkoma eða rigning sunnantil Aflétta rýmingu í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Allhvöss norðaustanátt og snjór norðan- og austantil Vonskuveður um allt land og vegir víða ófærir Áfram bálhvasst víða en dregur úr í kvöld Fjórði sólríkasti vetur í Reykjavík frá upphafi mælinga Djúp lægð nálgast og viðvörun gefin út Gular viðvaranir um allt austanvert landið Gul viðvörun á suðausturlandi um helgina Kólnar aftur í kvöld og spáð stormi um helgina Sjá meira