Handbolti

Tandri Már inn fyrir Ými Örn

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Tandri Már í leik með íslenska landsliðinu.
Tandri Már í leik með íslenska landsliðinu. HSÍ

Ein breyting hefur verið gerð íslenska landsliðinu sem mætir Ísrael síðar í dag. Tandri Már Konráðsson kemur inn í hópinn fyrir Ými Örn Gíslason.

Landsliðsþjálfari Íslands, Guðmundur Þórður Guðmundsson, hefur valið þá 16 leikmenn sem munu mæta Ísrael í undankeppni EM 2022 síðar í dag. Ísland hefur nú þegar tryggt sér sæti á mótinu.

Ýmir Örn Gíslason ferðaðist ekki með liðinu til Íslands sökum persónulegra ástæðna. Hann leikur með Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi. Í hans stað kemur Tandri Már Konráðsson inn í íslenska hópinn.

Leikur Íslands og Ísraels fer fram að Ásvöllum í Hafnafirði og verður í beinni textalýsing hér á Vísi frá klukkan 15.15.

Hópur Íslands gegn Ísrael

Markverðir

Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding (40/1)

Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG (24/1)

Vinstra horn

Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (81/228)

Oddur Gretarsson, Balingen-Weistetten (28/37)

Vinstri skytta

Aron Pálmarsson, Barcelona (151/590)

Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg HH (33/9)

Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad (132/262)

Tandri Már Konráðsson, Stjarnan (23/27)

Leikstjórnendur

Elvar Örn Jónsson, Skjern (45/116)

Gunnar Steinn Jónsson, Göppingen (44/36)

Hægri skytta

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (55/146)

Teitur Örn Einarsson, IFK Kristianstad (20/19)

Viggó Kristjánsson, Stuttgart (20/51)

Hægra horn:

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce (38/79)

Línumenn

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (62/76)

Sveinn Jóhannsson, SønderjyskE Håndbold (11/19)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×