Guðni: Ekkert grín að vera án ljóss og hita

Guðni um borð Freyju.
Guðni um borð Freyju. Ljósmynd/Forseti Íslands

„Ekki fer allt eins og ætlað er. Nú siglum við á varðskipinu Freyju til Akureyrar, ég orðinn lögskráður um borð,“ skrifar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, á Facebook-síðu sína.

Eins og mbl.is greindi frá í dag var forsetinn um borð varðskipsins Freyju þegar því barst útkall klukkan fjögur í nótt, en togarinn Hrafn Svein­björns­son varð aflvana um 50 sjó­míl­ur norð-norðvest­ur af Straumsnesi í nótt.

Freyja var á leið inn á Pat­reks­fjarðarflóa, en fyr­ir­hugað var að skipið yrði hluti af minn­ing­ar­at­höfn eft­ir há­degi í dag vegna krapa­flóðsins sem féll á Pat­reks­fjörð fyr­ir 40 árum síðan. Til stóð að forsetinn tæki þátt í athöfninni.

Ljósmynd/Forseti Íslands

Horfðu á leikinn í kvöld

Í Facebook-færslu sinni þakkar Guðni Friðriki Höskuldssyni skipherra og áhafnar hans fyrir gestrisni og góðvild. Greinir Guðni einnig frá því að hann hafi náð að horfa á sigurleik íslenska karlaliðsins í handbolta gegn Brasilíu með áhöfninni í kvöld. 

Þá sendir Guðni áhöfn Hrafns Sveinbjarnarsonar góðar kveðjur.

„Ég sendi áhöfn Hrafns Sveinbjarnarsonar einnig góðar kveðjur. Það er ekkert grín að vera án ljóss og hita úti á ballarhafi, rétt við ísrönd og fjarri landi en reyndar var þar lygnt og líklega var veður hvergi eins gott í íslenskri lögsögu í dag og úti á Hallamiðum. Það var þó lán í óláni,“ skrifar forsetinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert