Innlent

Kristrún hafi ákveðið að búa til eigið leikrit

Snorri Másson skrifar
Kristrún Frostadóttir frambjóðandi Samfylkingarinnar og Andrés Jónsson almannatengill.
Kristrún Frostadóttir frambjóðandi Samfylkingarinnar og Andrés Jónsson almannatengill. Vísir

Deildar meiningar eru um viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur við umfjöllun Viðskiptablaðsins og Morgunblaðsins um hagnað hennar af kaupréttarauka í samningi hennar hjá Kviku banka. Leikrit segir einn, vitlaust spilað segir annar en gullið tækifæri til að tala til síns hóps segir sá þriðji. Málið var til umræðu í Pallborðinu á Vísi í dag.

Kristrún Frostadóttir birti langa færslu í gær þar sem hún sakaði Morgunblaðið og Viðskiptablaðið um samantekin ráð gegn sér. Þar var hún að vísa til umfjöllunar Viðskiptablaðsins um sérstakan kaupréttarauka sem henni var veittur ásamt fáum öðrum starfsmönnum Kviku banka á sínum tíma. 

Í frétt Viðskiptablaðsins segir að Kristrún hafi ekki brugðist við fyrirspurnum blaðsins um málið. Hún gagnrýndi blaðið síðan harðlega fyrir að reyna að tortryggja störf hennar vegna þessa.

Rætt er um málið frá sjöundu mínútu í Pallborði dagsins sem sjá má hér að neðan:



„Ég fékk ekki 1 kr. í kaupaukagreiðslu frá Kviku og borgaði fyrir mína eigin fjárfestingu í félaginu, takk fyrir mig. Fjárfesting sem kom vel út eins og víða á hlutabréfamarkaði síðustu ár. Síðast þegar ég vissi mega fleiri en Sjálfstæðismenn taka þátt á hlutabréfamarkaði,“ skrifaði Kristrún.

Andrés Jónsson almannatengill líkti atburðarásinni við leikrit af hálfu beggja.

„Hún ákveður væntanlega ekki að vera hluti í því leikriti, þannig að hún býr til sitt eigið leikrit á sínum samfélagsmiðli. Það er verið að skylmast,“ sagði Andrés.

Máni Pétursson sagði viðbrögðin til marks um óeðlilega afstöðu stjórnmálamanna til fjölmiðla.

Gríðarleg hræsni hjá Kristrúnu, sagði Máni Pétursson.Vísir/Vilhelm

„Hræsnin í þessu, sorry to say, er gríðarlega mikil. Þú getur alveg svarað blaðamanninum. En málið er hins vegar er að þetta er ekkert mál, en Kristrún Frostadóttir er að spila það vitlaust,“ sagði Máni.

Svanhildur Hólm sagði eðlilegt að taka fjárfestinguna til umfjöllunar en að ekkert hafi verið í umfjöllun dagblaðanna sem ætti að varpa rýrð á Kristrúnu.

„Hún fær auðvitað það út úr þessu sem hún ætlar sér sem er mikil umfjöllun og mikil athygli. Hún fær sitt fólk með sér. Þú ert að smala liðinu þínu saman. Hér er eitthvað ósanngjarnt að gerast, það er að beinast að mér og svona svara ég, og ég geri það með sleggju. Þið takið mig ekki niður,“ sagði Svanhildur.


Tengdar fréttir

Sakar Við­skipta­blaðið og Morgun­blaðið um saman­tekin ráð gegn sér

Kristrún Frostadóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi suður, sakar Morgunblaðið og Viðskiptablaðið um samantekin ráð til að gera lítið úr jafnaðarmannaskoðunum hennar. Fjölmiðlarnir tveir hafa fjallað um kauprétt sem hún nýtti sér á hlutabréfum í Kviku banka.

„Þið fáið ekki að kúga mig og fleiri konur“

Kristrún Frostadóttir hagfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar, sakar nafnlausa dálkahöfunda Viðskiptablaðsins um að gera markvisst lítið úr konum og taka þátt í að skapa fjandsamlegt umhverfi fyrir þær sem láti á sér kveða í efnahagsmálaumræðu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×