177 manns stukku í sjóinn fyrir Svenna Eiður Þór Árnason skrifar 1. maí 2021 18:27 Skömmu fyrir upphafsstökkið. Frá vinstri: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra, Pétur Magnússon úr árgangi '71, Sigrún Guðný Pétursdóttir, formaður Björgunarfélags Akraness, dætur Sveinbjörs og Guðný Ósk Stefánsdóttir, eiginkona hans, Sveinbjörn sjálfur, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness og Hallgrímur Ólafsson leikari. Aðsend 177 manns stukku í sjóinn við Akraneshöfn í blíðskaparveðri í dag til að safna fyrir sérstöku rafhjóli fyrir Sveinbjörn Reyr Hjaltason sem lenti í alvarlegu mótorkrossslysi.
Skagamennirnir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri Akraness og Hallgrímur Ólafsson leikari voru meðal þeirra sem tóku stökkið á smábátasvæðinu á Akranesi. Var sá yngsti einungis fimm ára gamall en skorað var á einstaklinga, hópa, félagasamtök og fyrirtæki til að heita á fólk sem stökk í sjóinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá '71 árganginum á Akranesi sem stóð fyrir viðburðinum til að styðja við jafnaldra sinn og félaga. Fullyrða skipuleggjendur að með þessu hafi jafnvel verið sett óformlegt Íslandsmet í bryggjustökki. Vinir Sveinbjörns í árgangi '71 voru kampakátir áður en þeir stukku í sjóinnAðsend Lamaðist fyrir neðan brjóstkassa Sveinbjörn Reyr slasaðist í mótorkrossbrautinni við Akranes fyrir rúmu ári og brotnaði sjötti hryggjarliðurinn í slysinu. Hann er nú lamaður fyrir neðan brjóstkassa og er markmiðið með söfnuninni að safna fyrir áðurnefndu hjóli sem kostar um þrjár milljónir króna. Skagafréttir greina frá því að söfnunin hafi gengið gríðarlega vel og að allar líkur séu á því að markmiðinu verði náð á allra næstu dögum. Þórdís Kolbrún ráðherra tók fyrsta stökkið í dag en á meðal þeirra sem fylgdu á eftir voru útvarpsmaðurinn Óli Palli, Gísli Einarsson sjónvarpsmaður, Theodór Freyr Hervarsson veðurfræðingur, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og nokkrir bæjarfulltrúar Akraness. Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á söfnunarreikning átaksins. Reikningsnúmerið er 552-26-3071 og kennitala 540710-0150.
Akranes Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira