Strangari reglur fyrir suðvesturhornið í tillögu um erlenda leikmenn Sindri Sverrisson skrifar 5. mars 2021 14:31 Erlendum leikmönnum í Dominos-deildunum mun fækka verði tillagan sem liggur fyrir ársþingi KKÍ samþykkt. Sömu reglur munu ekki gilda fyrir Tindastól og Stjörnuna. vísir/hulda margrét Fjögur körfuknattleiksfélög hafa lagt fram tillögu um breytingar á reglum um erlenda leikmenn í mótum á Íslandi. Tillagan verður tekin fyrir á ársþingi KKÍ eftir rúma viku. Tillögunni má lýsa sem 3+2 reglu, eða 3+1+1. Hún gengur út á það að lið megi ekki hafa fleiri en tvo erlenda leikmenn inni á vellinum á sama tíma og þar af yrði að minnsta kosti annar að vera frá ríki innan EES. Hinir þrír leikmennirnir þyrftu að vera uppaldir hjá félögum innan KKÍ, samkvæmt tillögunni, vera með íslenskt ríkisfang eða hafa haft lögheimili á Íslandi í samfellt þrjú ár. Það eru Haukar, KR, Stjarnan og Valur sem leggja fram tillöguna. Í tillögunni er gefinn ákveðinn „afsláttur“ fyrir félög utan suðvesturhorns landsins. Þeim dygði að vera með tvo íslenska leikmenn innan vallar hverju sinni í stað þriggja en mættu þó ekki hafa fleiri en einn leikmann frá ríki utan EES. Í dag geta félög teflt fram eins mörgum leikmönnum frá EES-ríkjum og þau vilja en mega bara hafa einn leikmenn frá ríki utan EES. Þannig hefur það verið frá árinu 2018 þegar „4+1 reglan“ var afnumin. Í tillögunni segir að til suðvesturhorns teljist lið á atvinnusvæði höfuðborgarsvæðis, frá og með Selfossi og Þorlákshöfn í austri til Borgarness í vestri. Tillögunni er ætlað að auka tækifæri og stækka hlutverk uppalinna leikmanna íslensku félaganna, til að þroska og búa til framtíðarlandsliðsmenn og fyrirmyndir, eins og það er orðað. Í rökstuðningi með tillögunni segir meðal annars að flestir núverandi landsliðsmenn Íslands hafi alist upp við 4+1 regluna, þar sem að hámarki einn erlendur leikmaður mátti vera innan vallar í hvoru liði hverju sinni. Tillöguna má lesa hér að neðan. Breytingar á 15. gr. um erlenda leikmenn í reglugerð um körfuknattleiksmót. Eftirfarandi texti kemur í stað 15. greinar. „Í úrvalsdeild karla og kvenna og 1. deild karla og kvenna skulu alltaf vera a.m.k. þrír leikmenn sem eru uppaldir hjá félögum innan KKÍ(homegrown) á leikvelli samtímis. Hverju liði er aldrei heimilt að vera með fleiri en einn erlendan leikmann á leikvelli sem ekki er ríkisborgari lands innan EES-ríkis (ESB) og telst ekki sem Bosman-A leikmaður skv. lögum UTL hverju sinni. Regla þessi gildir fyrir lið sem eru á suðvesturhorn landsins, sé lið utan suðvesturshorns skulu alltaf vera a.m.k. tveir leikmenn sem eru uppaldir hjá félögum innan KKÍ. Í bikarkeppni og meistarakeppni KKÍ gilda sömu reglur og um úrvalsdeild karla og kvenna og 1. deild karla og kvenna. Uppaldir leikmenn teljast þeir sem hafa spilað og æft körfubolta innan félaga KKÍ í þrjú ár hið minnsta frá og með árinu sem leikmaðurinn verður 13 ára til og með árinu sem hann verður 21 árs eða er með íslenskt ríkisfang. Erlendur ríkisborgari sem hefur samkvæmt Þjóðskrá haft lögheimili á Íslandi samfellt í þrjú ár telst ekki sem erlendur leikmaður í reglugerð þessari og skal hann framvísa nauðsynlegum gögnum til skrifstofu KKÍ, búsetuvottorð frá Þjóðskrá. KKÍ staðfestir að hann teljist með íslenskum ríkisborgurum samkvæmt þessari reglugerð. Sá sem hefur leiktíðina sem erlendur leikmaður telst sem slíkur út leiktíðina og skal miða við fyrsta leik í móti á vegum KKÍ (Íslandsmót, bikarkeppnir eða önnur mót/leikir á vegum KKÍ), nema að fenginni undanþágu aga- og úrskurðanefndar. Félögum er heimilt að sækja um undanþágu varðandi þriggja ára fasta búsetu til stjórnar KKÍ telji það sig hafa fyrir því haldbær rök að viðkomandi leikmaður sé búinn að skapa sér heimili til framtíðar á landinu. Til suðvesturhorns landsins teljast lið sem eru á atvinnusvæði höfuðborgarsvæðis, frá og með Selfossi / Þorlákshöfn í austri til og með Borgarnesi í vestri. Brjóti félag gegn þessari reglu telst félag hafa notað ólöglegan leikmann og skal sæta viðurlögum samkvæmt 8. grein reglugerðar um körfuknattleiksmót.“ Lagt fram af KKD Vals, KR, Hauka og Stjörnunnar. Eins og Vísir hefur áður fjallað um verður á þingi KKÍ einnig tekin fyrir tillaga um að lið í yngri flokkum geti skráð sig á Íslandsmót hjá gagnstæðu kyni. Einnig verður kosið um tillögu um gagngerar breytingar á lögum KKÍ, sem stjórn KKÍ leggur til, og afreksstefnu sambandsins til næstu fjögurra ára. Körfubolti Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Hannes sjálfkjörinn og nálgast tuttugu ára afmæli Hannes S. Jónsson er einn í framboði og því sjálfkjörinn sem formaður Körfuknattleikssambands Íslands. Ársþing KKÍ fer fram um aðra helgi. 4. mars 2021 14:31 Kosið um það hvort stelpna- og strákalið geti mæst Stelpnalið og strákalið í körfubolta gætu spilað í sama flokki á Íslandsmóti allt fram til 14 ára aldurs yrði tillaga þess efnis samþykkt á ársþingi KKÍ 13. mars. 2. mars 2021 09:00 Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Leik lokið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Sjá meira
Tillögunni má lýsa sem 3+2 reglu, eða 3+1+1. Hún gengur út á það að lið megi ekki hafa fleiri en tvo erlenda leikmenn inni á vellinum á sama tíma og þar af yrði að minnsta kosti annar að vera frá ríki innan EES. Hinir þrír leikmennirnir þyrftu að vera uppaldir hjá félögum innan KKÍ, samkvæmt tillögunni, vera með íslenskt ríkisfang eða hafa haft lögheimili á Íslandi í samfellt þrjú ár. Það eru Haukar, KR, Stjarnan og Valur sem leggja fram tillöguna. Í tillögunni er gefinn ákveðinn „afsláttur“ fyrir félög utan suðvesturhorns landsins. Þeim dygði að vera með tvo íslenska leikmenn innan vallar hverju sinni í stað þriggja en mættu þó ekki hafa fleiri en einn leikmann frá ríki utan EES. Í dag geta félög teflt fram eins mörgum leikmönnum frá EES-ríkjum og þau vilja en mega bara hafa einn leikmenn frá ríki utan EES. Þannig hefur það verið frá árinu 2018 þegar „4+1 reglan“ var afnumin. Í tillögunni segir að til suðvesturhorns teljist lið á atvinnusvæði höfuðborgarsvæðis, frá og með Selfossi og Þorlákshöfn í austri til Borgarness í vestri. Tillögunni er ætlað að auka tækifæri og stækka hlutverk uppalinna leikmanna íslensku félaganna, til að þroska og búa til framtíðarlandsliðsmenn og fyrirmyndir, eins og það er orðað. Í rökstuðningi með tillögunni segir meðal annars að flestir núverandi landsliðsmenn Íslands hafi alist upp við 4+1 regluna, þar sem að hámarki einn erlendur leikmaður mátti vera innan vallar í hvoru liði hverju sinni. Tillöguna má lesa hér að neðan. Breytingar á 15. gr. um erlenda leikmenn í reglugerð um körfuknattleiksmót. Eftirfarandi texti kemur í stað 15. greinar. „Í úrvalsdeild karla og kvenna og 1. deild karla og kvenna skulu alltaf vera a.m.k. þrír leikmenn sem eru uppaldir hjá félögum innan KKÍ(homegrown) á leikvelli samtímis. Hverju liði er aldrei heimilt að vera með fleiri en einn erlendan leikmann á leikvelli sem ekki er ríkisborgari lands innan EES-ríkis (ESB) og telst ekki sem Bosman-A leikmaður skv. lögum UTL hverju sinni. Regla þessi gildir fyrir lið sem eru á suðvesturhorn landsins, sé lið utan suðvesturshorns skulu alltaf vera a.m.k. tveir leikmenn sem eru uppaldir hjá félögum innan KKÍ. Í bikarkeppni og meistarakeppni KKÍ gilda sömu reglur og um úrvalsdeild karla og kvenna og 1. deild karla og kvenna. Uppaldir leikmenn teljast þeir sem hafa spilað og æft körfubolta innan félaga KKÍ í þrjú ár hið minnsta frá og með árinu sem leikmaðurinn verður 13 ára til og með árinu sem hann verður 21 árs eða er með íslenskt ríkisfang. Erlendur ríkisborgari sem hefur samkvæmt Þjóðskrá haft lögheimili á Íslandi samfellt í þrjú ár telst ekki sem erlendur leikmaður í reglugerð þessari og skal hann framvísa nauðsynlegum gögnum til skrifstofu KKÍ, búsetuvottorð frá Þjóðskrá. KKÍ staðfestir að hann teljist með íslenskum ríkisborgurum samkvæmt þessari reglugerð. Sá sem hefur leiktíðina sem erlendur leikmaður telst sem slíkur út leiktíðina og skal miða við fyrsta leik í móti á vegum KKÍ (Íslandsmót, bikarkeppnir eða önnur mót/leikir á vegum KKÍ), nema að fenginni undanþágu aga- og úrskurðanefndar. Félögum er heimilt að sækja um undanþágu varðandi þriggja ára fasta búsetu til stjórnar KKÍ telji það sig hafa fyrir því haldbær rök að viðkomandi leikmaður sé búinn að skapa sér heimili til framtíðar á landinu. Til suðvesturhorns landsins teljast lið sem eru á atvinnusvæði höfuðborgarsvæðis, frá og með Selfossi / Þorlákshöfn í austri til og með Borgarnesi í vestri. Brjóti félag gegn þessari reglu telst félag hafa notað ólöglegan leikmann og skal sæta viðurlögum samkvæmt 8. grein reglugerðar um körfuknattleiksmót.“ Lagt fram af KKD Vals, KR, Hauka og Stjörnunnar. Eins og Vísir hefur áður fjallað um verður á þingi KKÍ einnig tekin fyrir tillaga um að lið í yngri flokkum geti skráð sig á Íslandsmót hjá gagnstæðu kyni. Einnig verður kosið um tillögu um gagngerar breytingar á lögum KKÍ, sem stjórn KKÍ leggur til, og afreksstefnu sambandsins til næstu fjögurra ára.
Breytingar á 15. gr. um erlenda leikmenn í reglugerð um körfuknattleiksmót. Eftirfarandi texti kemur í stað 15. greinar. „Í úrvalsdeild karla og kvenna og 1. deild karla og kvenna skulu alltaf vera a.m.k. þrír leikmenn sem eru uppaldir hjá félögum innan KKÍ(homegrown) á leikvelli samtímis. Hverju liði er aldrei heimilt að vera með fleiri en einn erlendan leikmann á leikvelli sem ekki er ríkisborgari lands innan EES-ríkis (ESB) og telst ekki sem Bosman-A leikmaður skv. lögum UTL hverju sinni. Regla þessi gildir fyrir lið sem eru á suðvesturhorn landsins, sé lið utan suðvesturshorns skulu alltaf vera a.m.k. tveir leikmenn sem eru uppaldir hjá félögum innan KKÍ. Í bikarkeppni og meistarakeppni KKÍ gilda sömu reglur og um úrvalsdeild karla og kvenna og 1. deild karla og kvenna. Uppaldir leikmenn teljast þeir sem hafa spilað og æft körfubolta innan félaga KKÍ í þrjú ár hið minnsta frá og með árinu sem leikmaðurinn verður 13 ára til og með árinu sem hann verður 21 árs eða er með íslenskt ríkisfang. Erlendur ríkisborgari sem hefur samkvæmt Þjóðskrá haft lögheimili á Íslandi samfellt í þrjú ár telst ekki sem erlendur leikmaður í reglugerð þessari og skal hann framvísa nauðsynlegum gögnum til skrifstofu KKÍ, búsetuvottorð frá Þjóðskrá. KKÍ staðfestir að hann teljist með íslenskum ríkisborgurum samkvæmt þessari reglugerð. Sá sem hefur leiktíðina sem erlendur leikmaður telst sem slíkur út leiktíðina og skal miða við fyrsta leik í móti á vegum KKÍ (Íslandsmót, bikarkeppnir eða önnur mót/leikir á vegum KKÍ), nema að fenginni undanþágu aga- og úrskurðanefndar. Félögum er heimilt að sækja um undanþágu varðandi þriggja ára fasta búsetu til stjórnar KKÍ telji það sig hafa fyrir því haldbær rök að viðkomandi leikmaður sé búinn að skapa sér heimili til framtíðar á landinu. Til suðvesturhorns landsins teljast lið sem eru á atvinnusvæði höfuðborgarsvæðis, frá og með Selfossi / Þorlákshöfn í austri til og með Borgarnesi í vestri. Brjóti félag gegn þessari reglu telst félag hafa notað ólöglegan leikmann og skal sæta viðurlögum samkvæmt 8. grein reglugerðar um körfuknattleiksmót.“ Lagt fram af KKD Vals, KR, Hauka og Stjörnunnar.
Körfubolti Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Tengdar fréttir Hannes sjálfkjörinn og nálgast tuttugu ára afmæli Hannes S. Jónsson er einn í framboði og því sjálfkjörinn sem formaður Körfuknattleikssambands Íslands. Ársþing KKÍ fer fram um aðra helgi. 4. mars 2021 14:31 Kosið um það hvort stelpna- og strákalið geti mæst Stelpnalið og strákalið í körfubolta gætu spilað í sama flokki á Íslandsmóti allt fram til 14 ára aldurs yrði tillaga þess efnis samþykkt á ársþingi KKÍ 13. mars. 2. mars 2021 09:00 Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Leik lokið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Sjá meira
Hannes sjálfkjörinn og nálgast tuttugu ára afmæli Hannes S. Jónsson er einn í framboði og því sjálfkjörinn sem formaður Körfuknattleikssambands Íslands. Ársþing KKÍ fer fram um aðra helgi. 4. mars 2021 14:31
Kosið um það hvort stelpna- og strákalið geti mæst Stelpnalið og strákalið í körfubolta gætu spilað í sama flokki á Íslandsmóti allt fram til 14 ára aldurs yrði tillaga þess efnis samþykkt á ársþingi KKÍ 13. mars. 2. mars 2021 09:00
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Körfubolti