Innlent

Ingi Freyr með stöðu sakbornings

Samúel Karl Ólason skrifar
Ingi Freyr var yfirheyrður af lögregluþjónum frá Akureyri
Ingi Freyr var yfirheyrður af lögregluþjónum frá Akureyri Vísir/Vilhelm

Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður Heimildarinnar, hefur fengið stöðu sakbornings í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna umfjöllunar fjölmiðla um „skæruliðadeild“ Samherja.

Í frétt Heimildarinnar um málið segir að Inga Frey hafi ekki verið tilkynnt um stöðu sína fyrr en í síðustu viku, þó hann hefði haft stöðu sakbornings frá upphafi. Ástæðan ku hafa verið að lögreglan hefði ekki vitað að Ingi Freyr byggi á Íslandi, sem hann hefur gert frá miðju ári 2021.

Aðrir blaðamenn með stöðu sakbornings fengu að vita það í febrúar í fyrra.

Ingi Freyr er fjórði blaðamaður Heimildarinnar með stöðu sakbornings í málinu en auk þeirra hefur Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri fréttaskýringaþáttarins Kveiks á Ríkisútvarpinu, einnig sömu stöðu.

Hún var yfirheyrð af lögreglu á þriðjudaginn.

Í frétt Heimildarinnar segir að Ingi Freyr hafi ekki komið að fréttaflutningi um skæruliðadeildina svokölluðu en hann sé með réttastöðu sakbornings vegna þess að hann hafi fengið tölvupósta nokkrum mánuðum síðar.

Málið snýr að því að talið sé að gögn úr síma Páls Steingrímssonar, skipstjóra hjá Samherja, hafi verið notuð til umfjöllunar um skæruliðadeildina en Páll heldur því fram að byrlað hafi verið fyrir sér og síma hans hafi verið stolið.


Tengdar fréttir

Óþægilegt að sitja undir ásökunum um þjófnað og byrlun

Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Heimildinni, áður Kjarnanum, segist hafa verið mjög hissa þegar Páll Vilhjálmsson bloggari og kennari sakaði hann og kollega hans um að hafa byrlað skipstjóra Samherja og stolið af honum síma til að geta skrifað fréttir. Páll mætti ekki í dómsal í morgun.

Blaða­­menn Kjarnans vilja milljónir frá Páli

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, og Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður Kjarnans, hafa stefnt framhaldsskólakennaranum Páli Vilhjálmssyni. Páll gaf í skyn á bloggsíðu sinni að blaðamennirnir hafi komið að því að byrla Páli Steingrímssyni skipstjóra. 

Vilja álit umboðsmanns á yfirheyrslum blaðamanna

Blaðamannafélag Íslands hefur sent umboðsmanni Alþingis rökstutt erindi þar sem hann er hvattur til að hefja frumkvæðisathugun á rannsókn og embættisfærslum lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra vegna málatilbúnaðar þess gegn fjórum blaðamönnum.

Ekki brotleg vegna orðalags um „skæruliðadeildina“

Siðanefnd Blaðamannafélag Íslands hefur úrskurðað að Brynjólfur Þór Guðmundsson, fréttamaður RÚV, og fréttastofa RÚV, hafi ekki brotið gegn siðareglum félagsins vegna orðalags um hina svokölluðu „skæruliðadeild“ Samherja í frétt á vef RÚV.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×