Innlent

Fjórir greindust innan­lands og þrír utan sótt­kvíar

Atli Ísleifsson skrifar
Tæplega 6.300 manns hafa greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldursins.
Tæplega 6.300 manns hafa greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Fjórir greindist með kórónuveiruna innan­lands í gær. Þrír þeirra sem greindust voru utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni Covid.is.

73 eru nú í einangrun, samanborið við áttatíu í gær. 165 eru nú í sóttkví, sami fjöldi og í gær. 1.072 eru nú í skimunarsóttkví. Þá eru þrír nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19, en þeir voru tveir í gær.

Þrír greindust á landamærum –tveir með virkt smit í fyrri landamæraskimun og einn með virkt smit í seinni landamæraskimun.

Nýgengi á smiti innanlands, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 12,5, en var 12,3 í gær. Nýgengi á smiti á landamærum er nú 7,1, en var 6,5 í gær.

28.614 eru nú fullbólusettir hér á landi og er bólusetning hafin hjá 41.444 til viðbótar.

Alls hafa 6.286 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 621 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær. Þá voru 434 sýni tekin á landamærunum eða í seinni landamæraskimun og 115 í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×