„Drengir eru þögull hópur þolenda“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 1. júní 2023 20:30 Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR, stóð fyrir ráðstefnunni. Vísir/Arnar Forsvarsmaður ráðstefnu sem fjallaði um kynferðisofbeldi gegn drengjum segir drengi ólíklegri til að stíga fram og segja frá en stúlkur. Afbrotafræðingur segir að til séu úrræði til að koma í veg fyrir að menn brjóti ítrekað af sér, og að þeim verði að beita.
Ráðstefnan var haldin í Háskólanum í Reykjavík í dag, í samstarfi við Háskólann á Akureyri, lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, Fangelsismálastofnun og Barna- og fjölskyldustofu. Skipuleggjandi hennar segir ráðstefnuna öðrum þræði fjalla um kynferðisofbeldi gegn öllum börnum, þótt kastljósinu væri beint að drengjum. „Drengir eru á margan hátt ósýnilegur hópur kynferðisofbeldis. Ég segi gjarnan að stúlkur séu hljóður hópur þolenda, en drengir eru þögull hópur þolenda,“ segir Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, sem stóð fyrir ráðstefnunni. Markmið ráðstefnunnar væri að skoða hvað hægt væri að gera til að aflétta þögninni í kringum kynferðisbrot gegn drengjum. „Hvernig getum við skapað samfélag þar sem þolendur, og í þessu tilviki drengir, sem stíga miklu, miklu sjaldnar fram, finni til öryggis til að segja frá áföllum og sársauka af þessu tagi.“ Aðstoð eftir afplánun Á ráðstefnunni var einkum fjallað um þolendur og úrræði fyrir fyrir þá, en sjónum var einnig beint að gerendum og hvernig koma megi í veg fyrir að menn brjóti ítrekað af sér. Afbrotafræðingur segir slík úrræði til; það þurfi einfaldlega að beita þeim. „Aðstoð meðan á afplánun stendur, meðferð og ýmiskonar ráðgjöf sem brotamönnum stendur til boða. En það er líka með aðstoð eftir að afplánun sleppir,“ segir Helgi Gunnlaugsson, prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands. Helgi Gunnlaugsson er prófessor í afbrotafræði við HÍ.Vísir/Arnar Með slíkri eftirfylgni væri hægt að draga verulega úr líkunum á að menn brjóti af sér eftir að hafa lokið afplánun. Heiftarleg viðbrögð samfélagsins við brotum sem þessum geti valdið því að þolendur veigri sér við að stíga fram, sér í lagi þegar þeir væru tengdir geranda. „Það er þetta sem við þurfum að rjúfa, við þurfum að fá þessi brot upp á yfirborðið og við verðum að koma í veg fyrir brot af þessu tagi,“ segir Helgi.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Háskólar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Sjá meira