Mun leiða starfshóp um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna Atli Ísleifsson skrifar 11. maí 2022 14:23 Brynja Dan Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins. Stjr Brynja Dan Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins, mun leiða sérstakan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna.
Frá þessu segir á vef mennta-og barnamálaráðuneytisins. Segir að hlutverk starfshópsins sé að kortleggja aðstæður sem líklegar séu til þess að valda alvarlegu áfalli í lífi barns eða aðstandanda þess. „Starfshópurinn mun greina þjónustuþörf og nauðsynleg úrræði sem gætu dregið úr líkum á áföllum eða áhrifum áfalla og koma með tillögur að úrbótum þvert á þjónustukerfi. Vinnan er þáttur í innleiðingu löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Rannsóknir sýna að áföll í æsku hafa forspárgildi um líkamlega og andlega heilsu síðar á ævinni. Börn sem upplifa áföll í æsku eru m.a. í aukinni áhættu er varðar geðrænan vanda, áhættuhegðun, aukna lyfjanotkun og líkamlega sjúkdóma á fullorðinsárum. Áföll foreldra og náinna aðstandenda sem valda börnum ójafnvægi eða vanlíðan geta haft áhrif á getu þeirra til að sinna barni og bregðast við líðan þess og þörfum. Mikilvægt er að huga að börnunum samhliða forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum. Skoða þarf hvernig hægt er að stíga inn með markvissri og viðeigandi aðstoð börn og fjölskyldur þeirra þegar áfall hefur eða er að fara að eiga sér stað. Með því er hægt að lágmarka þau alvarlegu og langvarandi áhrif sem áfall getur haft og veita börnum og aðstandendum verkfæri til þess að glíma við erfiðar aðstæður. Brynja, sem er framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins, hefur mikla reynslu af málefnum barna og situr m.a. í stjórnum Barnaheilla og Íslenskrar ættleiðingar,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að starfshópurinn verði skipaður fagfólki, fulltrúum þeirra ráðuneyta og annarra aðila sem komi að þjónustu við börn. Áhersla verði á víðtækt samráð við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra og er gert ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum fyrir lok árs 2022.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Réttindi barna Félagsmál Börn og uppeldi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira