Varaforsetum fjölgað úr tveimur í þrjá

Ragnar Þór Ingólfsson, einn varaforseta ASÍ og formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, einn varaforseta ASÍ og formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Á 44. þingi Alþýðusambands Íslands sem haldið var í 300 manna fjarfundi í dag var samþykkt að breyta lögum sambandsins þannig að varaforsetum verður fjölgað úr tveimur í þrjá. Í kosningu um þetta nýja embætti var aðeins Ragnar Þór Ingólfsson í framboði og var hann því sjálfkjörinn.

Ekki bárust nein mótframboð um embætti forseta ASÍ, 1. varaforseta né 2. varaforseta og eru Drífa Snædal, Kristján Þórður Snæbjarnarson og Sólveig Anna Jónsdóttir því sjálfkjörin í þau embætti.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/10/21/atvinnuleysi_eitur_i_beinum_asi/

Þá voru 11 einstaklingar sem kjörnefnd gerði tillögu um sjálfkjörnir sem aðalmenn í miðstjórn þar sem engin mótframboð bárust.

Miðstjórn ASÍ 2020-2022 verður því þannig skipuð:

ASÍ  Drífa Snædal, forseti ASÍ
RSÍ  Kristján Þórður Snæbjarnarson, Félag rafeindavirkja, 1. varaforseti
SGS Sólveig Anna Jónsdóttir, Efling stéttarfélag, 2. varaforseti
LÍV   Ragnar Þór Ingólfsson, VR, 3. varaforseti

SGS  Hjördís Þóra Sigþórsdóttir, AFL – starfsgreinafélag
SGS  Hörður Guðbrandsson, Verkalýðsfélag Grindavíkur
SSÍ   Valmundur Valmundarson, Sjómannafélagið Jötunn 
Bein aðild Guðmundur Helgi Þórarinsson, Félag vélstjóra og málmtæknimanna 
SGS   Björn Snæbjörnsson, Eining – Iðja
LÍV    Eiður Stefánsson, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri
SGS   Finnbogi Sveinbjörnsson, Verkalýðsfélag Vestfirðinga 
SGS   Halldóra Sveinsdóttir, Báran - stéttarfélag
Samiðn  Hilmar Harðarson, Félag iðn- og tæknigreina                     
LÍV   Harpa Sævarsdóttir, VR
LÍV   Helga Ingólfsdóttir, VR

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert