Lífið

Byggðu nýtt íbúðarhús í jaðri Skaftáreldahrauns

Kristján Már Unnarsson skrifar
Nýja íbúðarhúsið að Hraunbóli. Orustuhóll sést beint fyrir ofan húsið.
Nýja íbúðarhúsið að Hraunbóli. Orustuhóll sést beint fyrir ofan húsið. Einar Árnason

Á jörðinni Hraunbóli á Brunasandi hafa hjónin Þuríður Helga Benediktsdóttir, atvinnumálafulltrúi Skaftárhrepps, og Birgir Teitsson arkitekt reist nýtt íbúðarhús í jaðri Brunahrauns, en svo kallast þessi álma hraunsins sem rann í Skaftáreldum árin 1783 til 1784.

Í þættinum Um land allt á Stöð 2 rifjar Þuríður upp mannlífið á Brunasandi þegar hún var þar ung stúlka í sveit hjá ömmu sinni og afa. Hér má sjá fjögurra mínútna myndskeið úr þættinum:

Arkitektinn Birgir lýsir því hvernig það tók þau aldarfjórðung að móta hugmyndina að húsinu. Hann segist með því hafa viljað fanga umhverfið og útsýnið.

Birgir Teitsson arkitekt segir það hafa tekið aldarfjórðung að hugsa húsið á þessum stað.Einar Árnason

„Við leggjum okkur hér inn í hraunið og skjólið og þar erum við að fanga nærumhverfið.“

Húsið var reist á sökklum ofan á lindir sem renna undan hrauninu „til að fá lækjarniðinn upp á verönd. Þar sem er vatn þar líður manni yfirleitt vel,“ segir arkitektinn.

Hraunból í jaðri Brunahrauns. Í gamla bænum til hægri bjuggu afi og amma Þuríðar í 56 ár til ársins 2004. Úr nýja húsinu sést yfir hraunið til Lómagnúps og Öræfajökuls í austri. Nýja húsið og gamli bærinn kallast á við hvort annað.Einar Árnason

Birgir segir nánar frá húsinu í þættinum, sem er endursýndur á Stöð 2 í dag, laugardag, klukkan 15.10. Eldri þætti Um land allt má nálgast í gegnum Maraþon Stöðvar 2.


Tengdar fréttir

Hraun Skaftárelda skóp nýja sveit eftir Móðuharðindin

Skaftáreldum og Móðuharðindunum sem þeim fylgdu hefur verið lýst sem mestu hörmungum Íslandssögunnar. Talið er að fimmtungur þjóðarinnar hafi látist og 75 prósent af bústofni landsmanna fallið af völdum eldgossins í Lakagígum árin 1783-1784.

Hitinn frá hrauninu skýrir hraða myndun byggðar á Brunasandi

Volgt vatn undan heitu hrauni Skaftárelda í áratugi eftir að gosinu lauk flýtti fyrir landnámi gróðurs á svæði sem áður var svartur jökulsandur. Þetta segir Þóra Ellen Þórhallsdóttir grasafræðingur að hljóti að vera skýringin á því hversvegna ný sveit myndaðist ótrúlega fljótt á Brunasandi.

Sagnir um bardaga sem skýra nafn Orustuhóls

Orustuhóll er áberandi kennileiti í Skaftárhreppi sem blasir við frá hringveginum skammt austan við bæjahverfið Foss á Síðu. Brunahraun, en svo nefnist hraun Skaftárelda á þessum slóðum, umlykur hólinn á alla kanta.

Hyggst njóta morgunkaffis með útsýni til Öræfajökuls

Hreiðar Hermannsson, eigandi Stracta Hótels á Hellu, er ekki aðeins að reisa hótel á eyðijörðinni Orustustöðum austan Kirkjubæjarklausturs. Hann er jafnframt að byggja einbýlishús þar sem hann hyggst eiga lögheimili.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×