Telur ferðaþjónustu lykilinn að hraðri viðspyrnu í vor Kjartan Kjartansson skrifar 21. nóvember 2020 13:52 Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. Vísir/Vilhelm
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist líta á ferðaþjónustuna sem lykilinn að hraðra viðspyrnu um allt land þegar glitta fer í eðlilegt líf í kórónuveirufaraldrinum í vor. Í ræðu á haustfundi miðstjórnar flokksins boðaði hann einnig mestu framkvæmdir sem landsmenn hefðu upplifað á næstunni. Góðar fréttir af þróun bóluefnis gegn kórónuveirunni bárust í vikunni sem er að líða. Sigurður Ingi sló bjartsýnistón í ræðu sinni um þróun faraldursins og efnahagslífi Íslands. „Fréttirnar sem okkur berast þessa dagana af bóluefnum gefur okkur von um að með vorinu sjáum við aftur glitta í eðlilegt líf og það sem er mikilvægast að ferðaþjónustan geti aftur farið í gang og ráðið til sín starfsfólk,“ sagði hann en fundurinn fer fram í fjarfundi. Ferðaþjónustan væri lykillinn að hraðra viðspyrnu um allt land þar sem hún hafi verið mikilvæg viðbót við landbúnað, sjávarútveg og fiskeldi hringinn í kringum landið. Metnaðarfull uppbygging í ferðaþjónustu hafi átt sér stað um allt land. Sér Sigurður Ingi fyrir sér hraðan viðsnúning á næstu mánuðum frá þeirri stöðu sem nú ríkir með tómum hótelum og glötuðum tækifærum þeirra sem störfuðu í ferðaþjónustu. „En, og þetta er mikilvægt en, allir þeir glæstu innviðir sem byggðir hafa verið upp, hvort heldur í samgöngum eða gistingu, öll sú þekking sem ferðaþjónustufólk hefur öðlast og síðast en ekki síst náttúran, landið sjálft, er enn til og bíður þess að ferðalangar leggi leið sína að nýju til okkar. Því hingað mun fólk vilja koma. Þá mun aftur lifna yfir landinu. Og það hratt,“ sagði formaðurinn. Leggja til hækkun á endurgreiðslum vegna kvikmyndaframleiðslu Til þess að styðja framsókn ferðaþjónustunnar lýsti Sigurður Ingi hugmyndum flokks síns um að styrkja kvikmyndagerð á Íslandi enn frekar með því að hækka endurgreiðslur vegna kostnaðar í 35% líkt og gert sé í löndum sem keppa við Ísland um verkefni á því sviði. Vísaði hann til könnunar á ferðavenjum sem sýndi að tæplega 40% ferðamanna sem komu til Íslands hafi tekið ákvörðun um það eftir að hafa séð Ísland í sjónvarpi eða kvikmyndahúsi. Í samgöngumálum fullyrti Sigurður Ingi að aldrei hefði verið fjárfest meir en þessar mundir og næstu ár. „Þar vil ég meina að framundan séu einu mestu umbreytingar sem sést hafa og að landsmenn hafi ekki upplifað annað eins framkvæmdatímabili,“ sagði hann. Uppbygging á vegakerfinu ætti sér ekki aðeins stað á landsbyggðinni heldur hafi einnig tekist að ná sáttum um framtíðarsýn um fjölbreyttar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Framsóknarflokkurinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samgöngur Kvikmyndagerð á Íslandi Ferðamennska á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Mótfallinn sjálfsafgreiðslu á Bessastöðum Boða til blaðamannafundar vegna Grindavíkur Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Sjá meira