Gengið sé fram hjá sjálfstæðismönnum í Suðurkjördæmi Árni Sæberg skrifar 28. nóvember 2021 17:49 Engan fulltrúa sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi er að finna í nýrri ríkisstjórn. Vísir/Vilhelm Formenn félaga ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi segjast verulega ósáttir með að ítrekað sé gengið fram hjá oddvitum flokksins í Suðurkjördæmi við val á ráðherrum. Stjórnir fulltrúaráða flokksins í kjördæminu eru á sama máli.
Í nýrri ríkisstjórn sem kynnt var til sögunnar í dag á Sjálfstæðisflokkurinn fimm ráðherra. Af þeim fimm er enginn þingmaður Suðurkjördæmis. Þetta telja ungir sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi sniðgöngu á oddvita þeirra. „Í síðastliðnum kosningum hlaut listi Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi gífurlegan stuðning og eignuðust þar fyrsta þingmann kjördæmisins, þess má geta að oddviti sjálfstæðismanna fékk því meiri fleiri atkvæði og meiri stuðning en oddviti og formaður Framsóknarflokksins,“ segir í ályktun sem formenn ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi sendu frá sér í dag. Þeir benda á að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem gengið sé fram hjá oddvitum kjördæmisins, það hafi verið gert við myndun síðustu þriggja ríkisstjórna. Þá segja þeir ekki unnt að efast um styrk Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu en í síðustu kosningum hlaut flokkurinn aðeins betri kosningu í kjördæmi formannsins, Kraganum. Misskipting valds eftir landshlutum Formennirnir urðu einnig fyrir vonbrigðum með dreifingu ráðherrastóla milli landshluta þar sem tíu ráðherrar auk forseta þingsins buðu sig fram á höfuðborgarsvæðinu. Einungis tveir ráðherrar eru fulltrúar landsbyggðarinnar, þau Sigurður Ingi og Þórdís Kolbrún. Því sé ljóst að íbúar landsbyggðarinnar sitji ekki við sama borð og íbúar höfuðborgarsvæðisins, að sögn formannanna. Þó bæti aðeins úr sök að stefnt sé að því að Guðrún Hafsteinsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna og fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, taki við af Jóni Gunnarssyni sem dómsmálaráðherra að átján mánuðum liðnum. Enn halli þó verulega á landsbyggðina. „Formenn félaga ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi lýsa yfir mikilli undrun á ákvörðun formanns Sjálfstæðisflokksins um að oddviti Suðurkjördæmissitji ekki heilt kjörtímabil sem ráðherra,“ segir í lok ályktunar formannanna. Fulltrúaráðin taka undir Stjórnir fulltrúaráða sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, Vestmannaeyjum, Árnessýslu, Austur-Skaftafellssýslu, Gullbringusýslu og Grindavík eru á sama máli og yngri flokkssystkini þeirra og hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna skipan ráðherra í nýja ríkisstjórn Stjórnirnar lýsa yfir vonbrigðum með að Bjarni Benediktsson hafi hundsað forystumann Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, í ráðherravali sínu. Þeir krefjast útskýringa af hálfu hans. „Vægi landsbyggðarinnar er vægast sagt fyrir borð borið með úthlutun ráðherrastóla í komandi ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn gefur sig út fyrir að vera flokkur allra landsmanna og ætti að sýna það í gjörðum sínum,“ segir í ályktun þeirra. Það að veita Guðrúnu Hafsteinsdóttur ráðuneyti einungis hluta kjörtímabilsins sé blaut tuska í andlitið kjósenda Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og öllum þeim hundruðum sjálfboðaliða sem tóku þátt í að tryggja glæst gengi flokksins.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Suðurkjördæmi Sjálfstæðisflokkurinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira