Framlengdi við KR

Kristinn Jónsson í leik með KR í sumar.
Kristinn Jónsson í leik með KR í sumar. Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson

Krist­inn Jóns­son, vinstri bakvörður KR-inga, hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við félagið en KR-ingar greina frá þessu á samfélagsmiðlum sínum í kvöld.

Bakvörðurinn er þrítugur en hann gekk í raðir KR fyrir tímabilið 2018 og varð Íslandsmeistari með liðinu í fyrra. Þá var hann valinn besti leikmaður Íslandsmótsins samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins.

Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Breiðablik í efstu deild vorið 2007 og lék með liðinu til ársins 2017 en kom þó við hjá nokkrum liðum á Norðurlöndunum þar á milli. Sem fyrr segir hefur hann verið hjá KR síðan 2018 en hann á 204 leiki í efstu deild hérlendis og í þeim 12 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert