Innlent

Segja engan vilja bera á­byrgð á þrjá­tíu kílóa klaka sem féll á bílinn

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
FotoJet (88)

Par sem lenti í því óhappi að þrjátíu kílóa klakaklumpur féll af brú og á bílinn þeirra á ferð segja mildi að ekki varð stórslys. Þau eru ósátt með viðbrögð Reykjavíkurborgar sem segist ekki getað borið ábyrgð á atvikinu. 

„Síðastliðinn fimmtudag erum við að keyra undir brúna á Miklubrautinni þegar það kemur stór klakaklumpur og lendir ofan á bílnum hjá okkur. Stórskemmdir á bílnum og við í miklu sjokki. Við stoppum utan í vegkanti og sjáum að bíllinn er mikið ónýtur og þetta var mikið sjokk,“ segir Arnór Snær Arnarson.

Þau hringdu samstundis í lögreglu og tilkynntu atvikið svo hún væri meðvituð um ástandið og hættuna.

„Nei við meiddumst ekki en þetta hefði getað farið mun verr,“ sagði Halldóra Fanney Ágústsdóttir.

Hvað haldiði að þetta hafi verið þungur biti? 

„Örugglega í kringum þrjátíu kíló. Þetta var mjög stór klaki,“ segir Arnór.

Bíllinn er mikið skemmdur.arnar halldórsson

Þau hafa engin svör fengið um orsök slyssins en halda að snjóruðningsbíll hafi verið að moka frá niðurföllum og ýtt klaka út á ystu nöf brúarinnar, enda átti atvikið sér stað daginn fyrir asahlákuna miklu þegar borgin stóð í ströngu.

„Líklegast hefur einhver ruðningsbíll eða klaki runnið af vörubíl og beint niður á bílinn hjá okkur. Við heyrum svo í reykjavíkurborg og sendum tjónaskýrslu og fáum svör að þau geti ekkert gert því verktakar á þeirra vegum hafi ekki verið að keyra þarna samkvæmt þeim og við vitum ekkert meira.“

Hvað segir tryggingafélagið? 

„Þau segjast ekkert getað gert og líklegt að krakkar hafi hent klökum niður en maður veit ekkert hvað hefur gerst.“

Nei og ekki öll börn sem valda þrjátíu kílóa klaka. Þau segjast ósátt með svör Reykjavíkurborgar en eins og staðan er núna þurfa þau að borga skemmdirnar úr eigin vasa.

„Þetta er mjög leiðinlegt og mikið óhapp og maður hefði viljað fá þetta bætt. Þetta er ekkert okkur að kenna, maður er bara að keyra þarna. Þetta er ömurlegt.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×