Matarleikhús á leynistað við Laugaveginn

Leó Snæfeld yfirbarþjónn tekur á móti gestum á Ömmu Don.
Leó Snæfeld yfirbarþjónn tekur á móti gestum á Ömmu Don. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Veitingastaðirnir voru orðnir eins og tveir stórir krakkar sem tóku of mikið pláss hvor frá öðrum. Því var best fyrir alla að Óx færi á nýjan stað og gæti þar haldið áfram sinni vegferð og framþróun. Hér höfum við bætt í og gert upplifunina enn meiri fyrir gesti,“ segir Þráinn Freyr Vigfússon, kokkur og eigandi veitingastaðanna Óx og Sumac.

Rúnar Pierre yfirkokkur og Þráinn Freyr eigandi Óx.
Rúnar Pierre yfirkokkur og Þráinn Freyr eigandi Óx. mbl.is/Kristinn Magnússon

Óx var nýverið fluttur um set á Laugavegi. Áður var um svokallaðan leynistað að ræða inn af Sumac þar sem pláss var fyrir 11 matargesti. Á nýja staðnum er pláss fyrir 17 gesti og auk þess hefur verið innréttaður huggulegur kokteilbar í gömlum stíl þar sem gestir geta sest niður í drykk áður en matarupplifun kvöldsins á Óx hefst.

Á nýja staðnum er pláss fyrir 17 gesti.
Á nýja staðnum er pláss fyrir 17 gesti. mbl.is/Kristinn Magnússon

Það er ekki hlaupið að því að finna staðinn. Gamaldags dyrabjalla er við látlausa hurð á Laugavegi merkt Ömmu Don. Gestir ganga um dimman gang og svo niður stiga en þegar inn er komið má þeim ljóst vera að eitthvað sérstakt er í uppsiglingu. Innréttingarnar og stemningin á Ömmu Don eru frá veröld sem var. Þarna finnst manni eins og maður gæti verið staddur á íslensku heimili fyrir nokkrum áratugum.

Nán­ari um­fjöll­un er að finna í Morg­un­blaðinu á fimmtudag, 1. júní. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert