Lukaku og Batshuayi hafa verið íslenska liðinu afar erfiðir í síðustu leikjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2020 15:00 Romelu Lukaku skoraði tvö mörk í síðasta leiknum sínum á Laugardalsvellinum en hér er hann í baráttu við Guðlaug Victor Pálsson í leiknum. Getty/ Philippe Crochet
Framherjar Belga hafa raðað inn mörkum í síðustu landsleikjum á móti Íslandi og þá hefur ekki skipt máli hvort Romelu Lukaku eða Michy Batshuayi hefur byrjað leikinn fyrir Belga. Nú er spurning hvort það verður Romelu Lukaku eða Michy Batshuayi sem byrjar leikinn á Laugardalsvellinum í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður sýndur beint á bæði Stöð 2 og Stöð 2 Sport. Michy Batshuayi hefur skorað fjögur mörk í síðustu tveimur leikjum sínum á móti Íslandi og þegar Romelu Lukaku mætti síðast í Laugardalinn þá skoraði hann tvívegis. Romelu Lukaku skoraði líka í 3-1 sigri Belga á Íslendingum í vináttulandsleik í nóvember 2014. Michy Batshuayi og Romelu Lukaku hafa því skorað samtals sjö mörk í síðustu fjórum landsleikjum Íslands og Belgíu sem Belgar hafa unnið alla og það með markatölunni 13-2. Batshuayi hefur nýtt sín tækifæri vel með belgíska landsliðinu en hann hefur skorað 19 mörk í 31 landsleik. Romelu Lukaku er samt fyrsti kostur og hann er með 53 mörk í 86 landsleikjunum sínum. Romelu Lukaku skoraði fyrir Belga í síðasta leik en það dugði ekki því Belgía tapaði þá 2-1 á móti Englandi á Wembley. Michy Batshuayi skoraði líka í sínum síðasta landsleik sem var vináttulandsleikur á móti Fílabeinsströndinni á fimmtudaginn var. Í leiknum á undan skoraði hann annað og fjórða mark belgíska landsliðsins í 5-1 sigri á Íslandi. Íslensku varnarmennirnir hafa ekki þurft að hafa áhyggjur af Romelu Lukaku í síðustu tveimur leikjum en frá ágúst 2017 þá hefur hann skorað 30 mörk í aðeins 26 landsleikjum. Íslenska liðið hefur hins vegar aldrei þurft að eiga við þá báða í einu og það er kannski eins gott.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjör: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Ég táraðist smá“ Sport „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ Körfubolti Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Fótbolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Mætti á þing FIFA úr fangaklefanum Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Sjá meira