Rússar segja ásakanir Norðmanna „alvarlega ögrun“ Kjartan Kjartansson skrifar 13. október 2020 23:36 Norska þinghúsið í Osló. Tölvuþrjótar komust í tölvupósta þingmanna og starfsmanna þingsins en ekki hefur verið gefið upp hversu miklu magni gagna var stolið í innbrotinu. Vísir/EPA
Sendiráð Rússlands í Noregi sagði ásakanir norskra stjórnvalda um að Rússar hafi staðið að tölvuárás á norska þingið í sumar „alvarlega og vísvitandi ögrun“ sem muni skaða samskipti ríkjanna. Norski utanríkisráðherrann segir vísbendingar um aðild rússneskra stjórnvalda að innbrotinu. Árásin var gerð 24. ágúst og var tölvupóstum þingmanna og starfsmanna þingsins stolið. Ine Eriksen Søreide, utanríkisráðherra Noregs, sagði í dag að ríkisstjórnin hefði upplýsingar undir höndum sem vísuðu á Rússa en að rannsókn stæði enn yfir. Innbrotið í tölvukerfi þingsins hefur verið sett í samhengi við deilur norskra og rússneskra stjórnvalda um meintan rússneskan njósnara sem Norðmenn vísuðu úr landi fyrr í ágústmánuði. Rússneska sendiráðið í Osló brást við ásökunum í yfirlýsingu sem það birti á Facebook-síðu sinni í dag. Sagði það ásakanirnar „óásættanlegar“ og „alvarlega og vísvitandi ögrun“. Sakaði það jafnframt norsk stjórnvöld um að hafa hafnað viðræðum um tölvuglæpi, að því er kemur fram í frétt rússnesku ríkisfréttastofunnar TASS. Fyrr á þessu ári varaði norska herleyniþjónustan við því að stjórnvöld í Kreml reyndu að ala á sundrung með áróðursherferðum sem væri ætlað að veikja traust almennings á stjórnvöldum, kosningum og fjölmiðlum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Tölvuþrjótar á vegum rússneskra stjórnvalda brutust inn í tölvupósta stjórnmálamanna Demókrataflokksins í Bandaríkjunum og láku til fjölmiðla fyrir forsetakosningarnar þar árið 2016. Þá háðu útsendarar Rússlands upplýsingahernað á samfélagsmiðlum sem bandarísk yfirvöld telja að hafi átt að sundra bandarísku þjóðinni.
Rússland Noregur Tölvuárásir Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira