Ríkið þurfi að fylgjast betur með meðferðaraðilum Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 25. september 2022 20:31 Tryggvi Guðjón Ingason formaður Sálfræðingafélags Íslands segir almenning bera of mikla ábyrgð. Vísir/Ívar Fannar Formaður Sálfræðingafélags Íslands kallar eftir því að stjórnvöld setji skýrari reglur um störf meðferðaraðila sem eru ekki heilbrigðisstarfsmenn. Ábyrgðin eigi ekki að liggja á herðum almennings, eins og hún gerir nú.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var greint frá því að Jón Sigurður Karlsson, sem hefur starfað sem klínískur sálfræðingur í áraraðir, sinni enn störfum sálfræðings þrátt fyrir að hafa misst starfsleyfið. Embætti landlæknis hefur borist fjöldi kvartana vegna þessa en skjólstæðingar hans, sem fréttastofa hefur rætt við, segjast hafa greitt honum fyrir greiningar sem eru ekki teknar gildar af geðlæknum. Jón sagði í samtali við fréttastofu í gær að hann hafi veitt skjólstæðingum ráðgjöf, sem markþjálfi en ekki sem sálfræðingur. Á heimasíðu Jóns kemur þó ekkert fram sem bendir til að hann hafi ekki starfsleyfi sem sálfræðingur. Þar kemur fram að hann hafi starfað sem klínískur sálfræðingur í áratugi og vinni við ýmis konar greiningarvinnu. Þá er hann skráður sem sálfræðingur á já.is. Vegna þess að Jón er ekki með starfsleyfi heyrir það ekki undir eftirlit embættis landlæknis. „Þegar fólk er ekki heilbrigðisstarfsfólk en er að veita þjónustu er enginn sem er með eftirlit með þeim,“ segir Tryggvi Guðjón Ingason formaður Sálfræðingafélags Íslands. „Og fólk veit ekki hvert það á að snúa sér ef það kemur í ljós að þjónustan er ekki það sem þau voru búin að vonast eftir. Auka þurfi eftirlit með þeim sem auglýsi sig sem meðferðaraðila og veiti slíka þjónustu. Í málum eins og þessu, er ábyrgðin of mikil á einstaklingum? „Já, ég myndi telja það. Það er of mikil ábyrgð sett á almenning að vera vakandi fyrir því hvort að viðkomandi sé heilbrigðisstarfsmaður eða ekki. Ég tel að ríkið þurfi að koma þar sterkara inn, til að hjálpa almenningi og upplýsa hann.“
Heilbrigðismál Geðheilbrigði Tengdar fréttir Landlækni berast kvartanir vegna sálfræðings sem sagður er starfa án starfsleyfis Embætti landlæknis hefur fengið ábendingar um að karlmaður sinni störfum sálfræðings þrátt fyrir að hafa ekki til þess starfsleyfi. Fjölmargir kvarta undan því að hafa greitt honum fyrir ADHD greiningar sem hvergi séu teknar gildar. 24. september 2022 18:35 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Fleiri fréttir Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsir eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Sjá meira
Landlækni berast kvartanir vegna sálfræðings sem sagður er starfa án starfsleyfis Embætti landlæknis hefur fengið ábendingar um að karlmaður sinni störfum sálfræðings þrátt fyrir að hafa ekki til þess starfsleyfi. Fjölmargir kvarta undan því að hafa greitt honum fyrir ADHD greiningar sem hvergi séu teknar gildar. 24. september 2022 18:35