Róbert tók Elliða í fjarkennslu í að klára færin og sagði honum að nota Rússatrixið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. janúar 2022 11:01 Elliði Snær Viðarsson hefur átt góða leiki með íslenska landsliðinu á EM. getty/Sanjin Strukic Róbert Gunnarsson er ánægður með Elliða Snæ Viðarsson og frammistöðu hans með íslenska handboltalandsliðinu en vill sjá hann klára færin sín betur.
Elliði skoraði eitt mark úr þremur skotum þegar Ísland tapaði fyrir Króatíu, 22-23, í milliriðli I á EM í gær. Ásgeir Örn Hallgrímsson er búinn að fá nóg af tilraunum Elliða til að vippa yfir markverði en Róbert er ekki alveg sammála. „Það er í raun ekkert að því að vippa en vippan þarf bara að vera betri. Hann á að vippa almennilega, snúa hann eða skjóta almennilega á markið,“ sagði Róbert í EM-hlaðvarpi Seinni bylgjunnar þar sem þeir Ásgeir Örn fóru yfir leikinn gegn Króatíu með Stefáni Árna Pálssyni. Ivan Pesic, markvörður Króatíu, greip vippu Elliða í leiknum án mikilla vandræða. Róbert er á því að það hafi haft áhrif á Eyjamanninn þegar hann klikkaði á dauðafæri undir lok leiks þegar hann gat komið Íslandi tveimur mörkum yfir. „Svo klikkaði aftur undir lokin sem var dýrt. Þetta vinnur á móti honum. Auðvitað missir hann niður smá sjálfstraust því hann greip vippuna hans. Hann þurfti ekki að teygja sig í hann. Þá verður hann kannski aðeins stífari og skýtur beint í hann þegar hann hefði átt að vippa því markvörðurinn kom svo langt út á móti,“ sagði Róbert. Róbert er einn allra besti línumaður sem Ísland hefur átt og gaf Elliða nokkur góð ráð þegar kemur að því að skora úr færunum sínum. „Mér finnst Elliði æðislegur og hann gerir margt rosalega flott. Hann þarf bara aðeins meiri yfirvegun í skotin, bíða, telja upp að þremur og skjóta svo. Þetta mun koma hjá honum. Hann er á flottri vegferð,“ sagði Róbert. „Einn góður Rússi kenndi mér þetta. Ef þú hoppar upp teldu upp að þremur í huganum áður en þú skýtur. Ég gerði þetta allan minn feril, reyndi að telja, sérstaklega þegar mikið var undir. Þá þurftirðu að nota einhver trix til að vera í jafnvægi. Þá er mjög gott að gera þetta, ef þú hefur tíma. Þú hefur auðvitað ekki alltaf tíma.“ Róbert segir að listin að klára færin sín snúist líka um það að plata markvörðinn. „Þú þarft að hóta skotinu annars staðar áður en þú vippar. Þú mátt ekki sýna vippuna of fljótt. Hornamenn gera þetta oft, sýna alltof fljótt hvað þeir ætla að gera. Þetta er sölumennska. Þú þarft að sýna markverðinum annað en þú ætlar að gera,“ sagði Róbert. Hlusta má á EM-hlaðvarp Seinni bylgjunnar í spilaranum hér fyrir ofan.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið Fótbolti Í beinni: Chelsea - Tottenham | Tíminn að renna út fyrir Spurs Enski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Valur - Afturelding | Valsmenn mættir eftir Evrópuævintýrið Svekkjandi tap lækkar líkurnar hjá lærisveinum Arnórs Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Sjá meira