Líney endurkjörin í Grikklandi

Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ.
Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri ÍSÍ. Ljósmynd/ÍSÍ

Aðalfundur Evrópusambands Ólympíunefnda (EOC) stendur nú yfir í Aþenu í Grikklandi. Rétt í þessu var kosningum að ljúka í stjórn EOC og í embætti stjórnar.

Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, sem setið hefur í stjórn samtakanna síðan árið 2017, fyrst allra Íslendinga, var endurkjörin í stjórn samtakanna til næstu fjögurra ára.

„Það er mikill heiður að njóta áframhaldandi stuðnings til setu í stjórn EOC. Síðustu ár hafa verið lærdómsrík og margar áskoranir hafa fylgt verkefnum samtakanna, ekki síst vegna heimsfaraldurs. Það er afar ánægjulegt að sjá fjölgun kvenna í stjórninni og er það í takt við breyttar áherslur innan EOC og Ólympíuhreyfingarinnar,“ var haft eftir henni í yfirlýsingu. 

Spyros Capralos frá Grikklandi var kjörinn forseti EOC með 34 atkvæðum gegn 16 atkvæðum sem Niels Nygaard frá Danmörku hlaut en Niels hefur gegnt embætti starfandi forseta samtakanna frá því að Janez Kocijancic lést á miðju síðasta ári. 

Lögum EOC var breytt á síðasta ári þannig að nú er tryggt að a.m.k fimm einstaklingar af hvoru kyni sitja hverju sinni sem meðstjórnendur í stjórn samtakanna. Að þessu sinni voru átta konur í framboði og hlutu sex kosningu sem meðstjórnendur, auk þess sem varaforseti EOC er kona.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert