Ríkisstjórnin hafi staðist prófið með prýði Vésteinn Örn Pétursson skrifar 7. júní 2021 22:28 Halla Signý er þingmaður Framsóknarflokksins. Vísir/Vilhelm Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að ríkisstjórninni hafi tekist að leysa þau óvæntu og gríðarstóru verkefni sem fylgdu kórónuveirufaraldrinum og hún hafi staðist prófið „með prýði.“ Þetta kom fram í máli hennar í eldhúsdagsumræðum á Alþingi nú í kvöld. „
Ríkisstjórnin hefur lagt fram mörg stefnumarkandi mál sem eiga eftir að skila árangri og koma þjóðinni til góða í framtíðinni. Það er okkar hlutverk sem stöndum hér í dag að skapa góða framtíð. Grunngildi Framsóknarflokksins er að skapa tækifæri fyrir alla óháð búsetu, kyni og aldri, skapa framtíð þar sem börnin okkar geta blómstrað,“ sagði Halla Signý. Hún vék máli sínu að heilbrigðiskerfinu og sagði eðlilegt að það væri mikið til umræðu eftir það sem á undan er gengið, og vísaði þar væntanlega til kórónuveirufaraldursins. „Við sem þjóð getum verið stolt og glöð yfir því hvað við eigum góða heilbrigðisstarfsmenn. Það er ekki sjálfgefið og við þurfum að passa upp á þá. Heilbrigðisstefna til ársins 2030 var samþykkt á yfirstandandi kjörtímabili og hornsteinn að henni var lagður fram í þingsályktunartillögu Framsóknarmanna sem samþykkt var 2017 hér á Alþingi. Hornsteinninn er heilbrigðisþjónusta fyrir alla landsmenn og jafnrétti til þjónustu svo að það takist. Þá þarf nýja hugsun og nýja nálgun í heilbrigðisþjónustu.“ Halla Signý vék máli sínu þá að því sem hún kallaði fjórðu iðnbyltinguna og sagði hana hafa fengið vængi síðustu mánuði. Hún hefði gefið fólkið aukið frelsi til að velja sér búsetu vítt og breitt um landið og benti á störf án staðsetningar, samvinnurými og að ný atvinnutækifæri væru ekki lengur bundin við höfuðborgarsvæðið. Hún lagði áherslu á að tryggt fjarskiptasamband væri eitt helsta áherslumál Framsóknarflokksins og sagði flokkinn hafa staðið fyrir öflugri byggðastefnu frá upphafi. „Forsenda þess að landsbyggðin vaxi og dafni er að til staðar sé öflugt byggðastefna ásamt góðum fjarskiptum og góðu vegakerfi,“ sagði Halla Signý og bætti við að öflug byggðastefna væri forsenda þess að landsbyggðin yxi og dafnaði „Við horfum fram á veg með bjartsýni og dug. Það þarf krafta og þor til að halda áfram að byggja á þeim góða grunni sem lagður hefur verið á yfirstandandi kjörtímabili. Framsókn býður fram krafta sína áfram með samvinnu og jafnrétti að leiðarljósi.“
Framsóknarflokkurinn Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Innlent Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Erlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira