Níundi eftir fyrri ferðina

Hilmar Snær Örvarsson eini Íslendingurinn á HM 2022.
Hilmar Snær Örvarsson eini Íslendingurinn á HM 2022.

Hilmar Snær Örvarsson er níundi eftir fyrri ferðina í svigi á heimsmeistaramóti fatlaðra í Lillehammer í Noregi.

Hilmar kom í mark í fyrri ferðinni í dag á 45,14 sekúndum en seinni ferðin hefst klukkan 12.30 að íslenskum tíma. Alls er 61 keppandi í greininni og bestum tíma í fyrri ferð náði Aleksei Bugaev frá Rússlandi sem renndi sér niður á 41,13 sekúndum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert