Býst við að farið verði að tillögum þingnefnda um skorður á hámarkshlut fjárfesta Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 7. júní 2021 18:30 Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka Vísir/Egill Tvö erlend fjármálafyrirtæki og tveir stærstu lífeyrissjóðir landsins eru kjölfestufjárfestar í Íslandsbanka - og hafa skuldbundið sig til að kaupa 10% hlutafjár. Hlutafjárútboð bankans hófst í morgun og bankastjóri segir stjórnvalda að ákveða hver hámarkshlutur hvers og eins megi verða.
Fjármálaráðherra tilkynnti í lok janúar ákvörðun sína að selja allt að 35% í Íslandsbanka af 100% hlut ríkisins í bankanum. Salan hófst í dag og lýkur 15. júní. Salan fer fram hér á landi og er það í fyrsta skipti sem það gerist hjá íslensku félagi í alþjóðlegu útboði. Aðeins Íslendingar og innlendir og erlendir fagfjárfestar geta keypt hlutafé í bankanum. Þetta þýðir að almenningur í öðrum löndum getur ekki fjárfest í bankanum í útboðinu nema að hafa íslenska kennitölu. Erlendir og innlendir ráðgjafar og bankar aðstoðuðu Bankasýslu ríkisins og Íslandsbanka við útboðið en stofnunin heldur á hlut ríkisins. Útboðsgengi er áætlað a á bilinu 71 kr. á hlut og 79 kr. á hlut en endanlegt útboðsgengi verður ákveðið í tilboðsferli. Lágmarksupphæð á kaupum í bankanum hefur verið ákveðin. „Lágmarkið er 50 þúsund krónur og það er stefnt að því að skerða ekki kaup undir milljón. Það fer svo eftir eftirspurninni hvort það tekst,“ segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka. Heildareignir 1,4 billjón krónur, markaðsvirði 150 milljarðar Heildareignir bankans eru um 1,4 billjón krónur. Áætlað er að ríkið fái 41 milljarð króna fyrir sinn hlut í bankanum en áætlað markaðsvirði hans er 150 milljarðar króna. „Verðmæti bankans er metið út frá eigin fé hans þannig að það er verið að selja eigin fé,“ segir Birna. Þegar eru komnir fjórir kjölfestufjárfesta sem fara samanlagt með 10% í bankanum eða Gildi og Lífeyrissjóður verslunarmanna sem fara hvor um sig með 2,31% hlut. Bandaríska sjóðstýringarfyrirtækið Capital World Investment hefur skuldbundið sig til að kaupa 3,85% hlut í og RWC breskt eignastýringarfyrirtæki áætlar að fara með 1,54% hlut í bankanum. Býst við að farið verði að tillögum þingnefnda um hámarkshluti fjárfesta Efnahags-og viðskiptanefnd Alþingis lagði til í janúar að sett verði hámark á hlut hvers tilboðsgjafa, t.d. 2,5–3,0% af heildarhlutafé bankans. Birna býst við að miðað verði við það í söluferlinu þó undantekning hafi verið gerð með Capital World Investment sem fer með 3,85% hlut. „Það er algjörlega seljandans eða ríkisins að ákveða hvernig fyrirkomulagið á því verður. Það komu leiðbeiningar frá þingnefndum sem verður örugglega stuðst við að einhverju leyti,“ segir Birna.
Íslenskir bankar Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Salan á Íslandsbanka Tengdar fréttir Hlutafjárútboð hafið og markaðsvirði Íslandsbanka áætlað 150 milljarðar króna Bankasýsla ríkisins, fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, og Íslandsbanki hf., hafa birt lýsingu og tilkynnt stærð fyrirhugaðs hlutafjárútboðs í bankanum og leiðbeinandi verðbil þess. Selja á rúmlega 636 milljón hluti en útboðshlutirnir, og valréttarhlutirnir, nema að hámarki 35 prósentum af heildarhlutafé bankans. 7. júní 2021 09:07 Verðmeta Íslandsbanka á 155 til 242 milljarða króna Fossar markaðir, sem er á meðal ráðgjafa vegna fyrirhugaðrar sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka, áætlar að virði bankans sé á bilinu 222 til 242 milljarðar króna. Sjálfstæði greiningaraðilinn Jakobsson Capital metur bankann á 155 til 218 milljarða króna. 2. júní 2021 11:14 Áforma hlutafjárútboð og skráningu Íslandsbanka í Kauphöll Bankasýsla ríkisins og Íslandsbanki hafa nú staðfest áform sín um að hefja hlutafjárútboð og í framhaldinu skráningu hlutabréfa Íslandsbanka á aðalmarkað Nasdaq Iceland. 27. maí 2021 08:26 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira
Hlutafjárútboð hafið og markaðsvirði Íslandsbanka áætlað 150 milljarðar króna Bankasýsla ríkisins, fyrir hönd Ríkissjóðs Íslands, og Íslandsbanki hf., hafa birt lýsingu og tilkynnt stærð fyrirhugaðs hlutafjárútboðs í bankanum og leiðbeinandi verðbil þess. Selja á rúmlega 636 milljón hluti en útboðshlutirnir, og valréttarhlutirnir, nema að hámarki 35 prósentum af heildarhlutafé bankans. 7. júní 2021 09:07
Verðmeta Íslandsbanka á 155 til 242 milljarða króna Fossar markaðir, sem er á meðal ráðgjafa vegna fyrirhugaðrar sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka, áætlar að virði bankans sé á bilinu 222 til 242 milljarðar króna. Sjálfstæði greiningaraðilinn Jakobsson Capital metur bankann á 155 til 218 milljarða króna. 2. júní 2021 11:14
Áforma hlutafjárútboð og skráningu Íslandsbanka í Kauphöll Bankasýsla ríkisins og Íslandsbanki hafa nú staðfest áform sín um að hefja hlutafjárútboð og í framhaldinu skráningu hlutabréfa Íslandsbanka á aðalmarkað Nasdaq Iceland. 27. maí 2021 08:26