Enski boltinn

Neville og Carragher héldu áfram að rífast úti á bílastæði og í leigubílnum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jamie Carragher og Gary Neville elduðu oft saman grátt silfur meðan þeir voru leikmenn, og gera það enn sem sjónvarpsmenn.
Jamie Carragher og Gary Neville elduðu oft saman grátt silfur meðan þeir voru leikmenn, og gera það enn sem sjónvarpsmenn. getty/Michael Regan

Gary Neville og Jamie Carragher var ansi heitt í hamsi í Monday Night Football á Sky Sports í gær. Þeir héldu áfram að rífast eftir þáttinn, á bílastæðinu fyrir utan höfuðstöðvar Sky og í leigubíl á leið heim á hótel.

Neville og Carragher deildu um hvernig hópur enska landsliðsins á EM í sumar ætti að líta út. Þeim hljóp sérstaklega mikið kapp í kinn þegar þeir ræddu um Trent Alexander-Arnold, hægri bakvörð Liverpool.

Neville birti myndband af rifrildi þeirra Carraghers eftir þáttinn á Instagram. Neville sagðist hafa orðið fyrir barðinu á scouse-mafíunni, gerði grín að hreim Carraghers og kallaði hann Boris Carragher.

Gamla Liverpool-hetjan skaut á Neville og gagnrýndi hann fyrir frammistöðu Englands á HM 2014 þar sem Neville var aðstoðarþjálfari enska liðsins. Carragher sagði jafnframt að Neville hefði alltaf átt erfitt með fólk frá Liverpool og sagði að hann væri vondur við Alexander-Arnold.

Neville og Carragher höfðu full hátt að mati öryggisvarðar á bílastæðinu sem skammaði þá og bað þá um að róa sig.

Þeir létu segjast en héldu samt áfram að rífast í leigubílnum á leið til baka á hótelið sem þeir dvöldu á.

Neville og Carragher hafa verið saman með Monday Night Football á Sky Sports undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×