Fimm létust í gíslatöku í kirkju Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 11. júlí 2020 17:11 Fimm létust í árásinni. Getty/Frikkie Kapp
Fimm létust í árás á kirkju í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í morgun. Að sögn lögreglunnar var mönnum, konum og börnum bjargað úr kirkjunni en árásin hafði breyst í gíslatöku. Þá hefur lögreglan handtekið minnst fjörutíu einstaklinga og lagt hald á tugi vopna. Miklar deilur hafa verið um forystu kirkjunnar, sem kallast International Pentecostal Holiness Church, og kviknuðu deilurnar eftir að fyrrverandi leiðtogi hennar lést árið 2016. Árásarmennirnir eru sagðir hafa verið í hópi andstæðinga núverandi leiðtogans en lögreglan hefur áður verið kölluð þangað þegar safnaðarmeðlimir hófust handa við að skjóta á hvorn annan árið 2018. Árið áður höfðu fjármál kirkjunnar vakið mikla athygli þegar ásakanir um að 110 milljón rönd, að jafnvirði 925 milljóna íslenskra króna, hefðu horfið litu dagsins ljós. Að sögn talsmanns lögreglunnar gerðu árásarmennirnir kirkjugestum viðvart og sögðust þeir ætla að taka yfir kirkjuna. Útkall til lögreglu barst klukkan þrjú að nóttu til að staðartíma. Þá sagði hann að fjórir hafi fundist látnir, en þeir höfðu verið skotnir í bílum sínum og kveikt í þeim. Þá var öryggisvörður, sem svaraði útkallinu, einnig skotinn til bana. Fimm rifflar, sextán haglabyssur og þrettán skammbyssur, auk fleiri vopna fundust í kirkjunni þegar lögregla gerði þar húsleit. Þá greindi lögreglan frá því að meðal þeirra sem voru handteknir voru hermenn í Suður-Afríska hernum, lögreglumenn hjá lögregluembættinu í Jóhannesarborg og fulltrúar Fangamálastofnunar. Talið er að safnaðarmeðlimir kirkjunnar í Suður-Afríku séu um þrjár milljónir talsins.
Suður-Afríka Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira