Án rafmagns í fimm klukkutíma

Rafmagnslaust hefur verið í Grindavík í fimm tíma.
Rafmagnslaust hefur verið í Grindavík í fimm tíma. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enn mun vera rafmagnslaust í Grindavík, fimm klukkutímum eftir að bilun kom upp í raforkuverinu í Svartsengi, en Spennir 2 leysti út kl. 13:40. Leysti hann aftur inn kl. 15:44, en síðan þá hefur verið unnið að bilanagreiningu og lagfæringu.

Á Facebook-síðu HS Veitna segir að nú sé verið að byggja upp kerfið og prófa innsetningu. 

Uppfært kl. 19:20: Rafmagn mun vera komið á helming bæjarins og verið að vinna að því að koma því öllu inn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert