„Ég var skelfingu lostinn“ Bjarki Sigurðsson og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 26. september 2022 19:35 Ken Jones hefur verið fastur í Möðrudölum í tæpan sólarhring. Vísir Bandarískur ferðamaður sem setið hefur fastur á Möðrudalsöræfum í tæpan sólarhring varð skelfingu lostinn þegar rúður í bílnum hans sprungu í óveðrinu í gær. Hann segist heppinn að hafa ekki stórslasast í látunum. Rúmlega sjötíu ferðamenn leituðu skjóls hjá Ferðaþjónustunni Fjalladýrð í Möðrudal eftir að þeir urðu strand vegna veðurs.
Einhverjir ferðamannanna bíða enn í Möðrudal en bílaleigur ferðamannanna vinna nú hörðum höndum að því að útvega þeim nýja bíla. Rúður í nánast hverjum einasta bíl á svæðinu eru nefnilega sprungnar og standa þeir yfirgefnir við veitingastaðinn Beitarhúsið á Möðrudalsöræfum. Ken Jones er einn þeirra sem situr fastur í Möðrudal. „Um leið og við komum þangað fundum við fyrir grjótfokinu. Ég held að þriðja rokan hafi brotið hliðargluggana bílstjóramegin. Ég tel mig heppinn að hafa ekki meiðst,“ segir Ken í samtali við fréttastofu en hann var sjálfur að keyra þegar óveðrið skall á. Bílarnir í Möðrudölum allir mikið tjónaðir eftir veðrið.Friðrik Árnason Varstu hræddur á einhverju augnabliki? „Ég var skelfingu lostinn. Þetta var mjög slæmt. Ég hef aldrei lent í öðru eins.“ Ken íhugar nú að framlengja ferð sína á landinu til þess að hann muni ekki eftir Íslandsferðinni sem slæmri ferð. Bæði bílaleigan og ferðaþjónustan sem hann bókaði ferðina hingað til lands með leita nú að leiðum til að aðstoða hann en hann kom hingað á fimmtudaginn í síðustu viku. „Kannski ætti að fræða fólk betur um veðrið. Svo við vitum hverju má eiga von á. En ég býst við því að svona sé sjaldgæft. Ég er nánast ánægður að hafa fengið að vera hluti af þessu, en á sama tíma ekki,“ segir Ken. Óveðrið skall hvað harðast á Austurland en þar eru gular viðvaranir enn í gildi. Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast en veðrið var hvað verst á Reyðarfirði og hefur enn ekki lægt. „Við vorum með fjóra hópa úti frá okkur, svo fengum við aðstoð frá Norðfirði og Fáskrúðsfirði. Við fengum tvo hópa frá Norðfirði og einn frá Fáskrúðsfirði. Þetta gerðist allt á einum klukkutíma, þá var allt orðið brjálað í bænum,“ segir Hjalti Þórarinn Ásmundsson, varaformaður björgunarsveitarinnar á Reyðarfirði, í samtali við fréttastofu. Hjalti Þórarinn Ásmundsson er varaformaður björgunarsveitarinnar á Reyðarfirði.Vísir Eignatjón virðist hlaupa á hundruð milljónum króna, ef marka má samtöl við bæði eigendur og fulltrúa tryggingafélaga. Allar hurðir á slökkviliðsstöðinni og einn útveggurinn sprakk upp og sama gerðist hjá Eimskipum, vélaverkstæðinu Launafli og á höfninni. Þar sprakk allt í tætlur, það var eins og búið væri að varpa handsprengju þarna niður. Það er stórtjón, hundruð milljóna held ég,“ segir Hjalti. Veðrið lék einnig íbúa Seyðisfjarðar grátt.Hafþór Harðarson Trausti Jónsson veðurfræðingur segir í samtali við fréttastofu að þrátt fyrir að veðrið sé að mörgu leiti óvenjulegt sé það ekki einstakt. Það líða svona einvherjir áratugir á milli þess sem þetta gerist á hverjum stað. Ekki síst ef við miðum við árstímann. Enga síður þá er þetta veður ekkert einstakt, þetta er eitthvað sem við getum búist við endrum og sinnum. Við höfum allmörg dæmi úr fortíðinni en það er skiljanlegt að fólk á miðjum aldri og yngra fólk muni ekki eftir þessu,“ segir Trausti. Trausti Jónsson, veðurfræðingur, segir veðrið ekki vera einstakt.Vísir
Veður Óveður 25. september 2022 Múlaþing Ferðamennska á Íslandi Fjarðabyggð Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Erlent Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Innlent Fleiri fréttir SA og SFF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Grunaður um að valda konunni áverkum sem leiddu hana til dauða Byrja að sekta vegna nagladekkja þrettánda maí Ósáttur með tal eftirlitsmannsins í kaupfélaginu en sektin stendur Sjá meira