Hæstiréttur tekur fyrir mál sérsveitarmanns vegna Hraunbæjarmálsins Atli Ísleifsson skrifar 16. mars 2023 08:14 Málið snýr að áfallastreituröskun sem meðlimur sérsveitar lögreglunnar glímir við vegna Hraunbæjarmálsins svokallaða árið 2013 þar sem lögregla skaut mann til bana eftir að sá hafði skotið í átt að lögreglu með haglabyssu. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni fyrrverandi liðsmanns sérsveitar ríkislögreglustjóra sem glímt hefur við áfallastreituröskun í kjölfar aðgerðar sérsveitarinnar í Árbæ í Reykjavík síðla árs 2013 sem leiddi til dauða manns.
Málið snýr að greiðslu bóta úr slysatryggingu launþega, en héraðsdómur dæmdi á sínum tíma tryggingafélagið VÍS til að greiða manninum um 2,4 milljónir króna vegna málsins. Landsréttur sneri hins vegar við dómnum í desember síðastliðinn og sýknaði tryggingafélagið og ákvað maðurinn að sækja um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar. Um er að ræða aðgerð sérsveitarinnar í desember 2013 þar sem hún var kölluð út að fjölbýlishúsi við Hraunbæ í Árbæ í Reykjavík þar sem tilkynnt hafði verið um skothvelli úr íbúð. Þar var skotið á lögreglumenn úr haglabyssu af stuttu færi og kveðst sérsveitarmaðurinn þá hafa verið í bráðri lífshættu og óttast verulega um öryggi sitt og líf. Umsátrinu lauk með því að lögregla skaut byssumanninn til bana. Lögreglumaðurinn sagðist upphaflega hafa talið að hann myndi jafna sig af andlegum einkennum eftir árásina, en síðar hafi einkennin farið að ágerast. Þetta var í fyrsta sinn sem sérsveitin felldi mann í aðgerðum. Deilt um fyrningu Landsréttur hafnaði því að slysatryggingin sem deilt væri um væri höfuðstólstrygging sem um gilti tíu ára fyrningarfrestur samkvæmt ákvæðum laga um vátryggingarsamninga og taldi að um væri að ræða hefðbundna slysatryggingu. Vildi Landsréttur meina að krafan um skaðabætur fyrnist á fjórum árum frá þeim degi sem tjónþolinn fengi nauðsynlegar upplýsingar um tjónið og þann sem ábyrgð bæri á því. Í dómi Landsréttur segir að leyfisbeiðanda hefði mátt vera ljóst þegar á árinu 2014 að atvikið hefði alvarlegar afleiðingar fyrir hann og fyrningarfrestur í fyrsta lagi byrjað að líða í lok þess árs. Samkvæmt grein skilmála slysatryggingarinnar fyrntist krafa samkvæmt vátryggingunni á fjórum árum og þar segði enn fremur að fresturinn hæfist við lok þess almanaksárs þegar sá er kröfuna ætti hefði fengið nauðsynlegar upplýsingar um atvik sem krafa hans væri reist á. Fram kemur að maðurinn hefði verið metinn með miðlungseinkenni áfallastreituröskunar í desember 2016 og fyrningarfrestur því byrjað að líða í síðasta lagi í lok þess árs. Komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að krafa leyfisbeiðanda hefði verið fyrnd þegar málið var höfðað í mars 2021. Síðkomin áfallastreituröskun Maðurinn ákvað að áfrýja málinu þar sem hann telji úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi. Hæstiréttur hefði aldrei áður fjallað ákvæði laga sem málið snýr að eða skilgreiningu á höfuðstóls- eða summutryggingu. „Í öðru lagi varðandi mat á upphafi fyrningarfrests þegar um er að ræða einkenni sem felast í síðkominni áfallastreituröskun. Í þriðja lagi um það hvort fjögurra eða tíu ára fyrningarfrestur gildi um kröfur úr slysatryggingu,“ segir í ákvörðun Hæstaréttar. Sömuleiðis vildi maðurinn meina að dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur að efni til, auk þess að málið varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína. Hæstiréttur taldi að dómur í málinu gæti haft fordæmisgildi um fyrningu kröfu á sviði vátrygginga og ákvað því að samþykkja áfrýjunarbeiðnina.
Dómsmál Reykjavík Lögreglan Tryggingar Tengdar fréttir Hraunbæjarmálið: Sorglegt atvik sem mun hafa áhrif á vinnu heilbrigðisráðuneytisins Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, veit ekki hvort hægt er að finna lausn í geðheilbrigðisgeiranum sem tekur til allra jaðartilvika 17. júní 2014 00:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Svandís boðar til blaðamannafundar Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Sautján greinst með kíghósta og inflúensan enn að dreifa sér Sjá meira
Hraunbæjarmálið: Sorglegt atvik sem mun hafa áhrif á vinnu heilbrigðisráðuneytisins Kristján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, veit ekki hvort hægt er að finna lausn í geðheilbrigðisgeiranum sem tekur til allra jaðartilvika 17. júní 2014 00:01