Kviknaði í íbúðarhúsnæði í Grindavík

Eldur kviknaði í íbúðarhúsi í Grindavík í dag.
Eldur kviknaði í íbúðarhúsi í Grindavík í dag. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Eldur kviknaði á neðri hæð í tveggja hæða íbúðarhúsi í Grindavík í dag. 

„Það kviknaði í íbúðarhúsi. Sennilega í eldhúsi en við vitum það ekki nákvæmlega. Það gekk mjög fljótt að slökkva og það var enginn inn í húsinu þegar við komum,“ segir Pétur Benediktsson, varaslökkviliðsliðsstjóri í Grindavík, í samtali við mbl.is.

Að sögn Péturs var mikill eldur og tók tuttugu til þrjátíu mínútur að slökkva hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert