KA-menn með flest stig allra liða í febrúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2021 14:32 Árni Bragi Eyjólfsson og félagar í KA-liðinu eru að gera flotta hluti í Olís deildinni þessa dagana. Vísir/Hulda Margrét Ekkert lið í Olís deild karla í handbolta hefur halað inn fleiri stig í febrúarmánuði en lið KA á Akureyri sem er taplaust í mánuðinum. KA-menn komu örugglega mörgum á óvart með því að vinna topplið Haukanna í KA-húsinu í gærkvöldi en miðið við síðustu leiki var þessi sigur engin tilviljun. Það var nefnilega allt annað KA-lið sem mætti til leiks eftir kórónuveiruhléið langa. KA-menn komust í 7-1 í upphafi leiks á móti Haukunum, voru 16-14 yfir í hálfleik og unnu leikinn á endanum 30-28. KA-liðið varð þar með fyrsta liðið til að vinna lærisveina Arons Kristjánssonar á þessu ári en eina deildartap Hauka á tímabilinu kom á móti Val 2. október síðastliðinn eða fyrir 146 dögum. KA-menn léku jafnframt sinn sjötta deildarleik í röð án þess að tapa. Þeir hafa ekki tapað síðan að liðið missti niður góða forystu á móti Aftureldingu í lokaleik sínum í janúarmánuði. KA var 19-15 yfir þegar seinni hálfleikurinn var hálfnaður en Mosfellingar unnu síðustu fjórtán mínútur leiksins 10-5 og þar með leikinn með einu marki. Síðan þá hefur KA liðið ekki tapað leik og norðanmenn hafa náð alls í tíu stig í febrúar með því að vinna fjóra leiki og gera tvö jafntefli. Ekkert lið hefur náð í fleiri stig í febrúar en KA er með stigi meira en bæði Stjarnan og Haukar. Í febrúar hefur KA-liðið unnið ÍR, ÍBV, Þór Ak. og Hauka og síðan gert jafntefli við FH og Val. Í leikjunum á móti FH og Val þá björguðu KA-menn stiginu með frábærum endakafla og með því að skora fjögur síðustu mörk leiksins. Flest stig liða Olís deildar karla í handbolta í febrúar: KA 10 stig Stjarnan 9 stig Haukar 9 stig FH 8 stig Selfoss 8 stig Valur 5 stig Grótta 5 stig Fram 5 stig Afturelding 4 stig ÍBV 3 stig Þór Ak. 2 stig ÍR 0 stig Flestir sigrar í Olís deildar karla í febrúar: KA 4 Stjarnan 4 Haukar 4 Selfoss 4 FH 3 Fæst töp í Olís deildar karla í febrúar: KA 0 FH 0 Stjarnan 1 Haukar 1 Valur 2 Grótta 2 Fram 2 Olís-deild karla KA Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sjá meira
KA-menn komu örugglega mörgum á óvart með því að vinna topplið Haukanna í KA-húsinu í gærkvöldi en miðið við síðustu leiki var þessi sigur engin tilviljun. Það var nefnilega allt annað KA-lið sem mætti til leiks eftir kórónuveiruhléið langa. KA-menn komust í 7-1 í upphafi leiks á móti Haukunum, voru 16-14 yfir í hálfleik og unnu leikinn á endanum 30-28. KA-liðið varð þar með fyrsta liðið til að vinna lærisveina Arons Kristjánssonar á þessu ári en eina deildartap Hauka á tímabilinu kom á móti Val 2. október síðastliðinn eða fyrir 146 dögum. KA-menn léku jafnframt sinn sjötta deildarleik í röð án þess að tapa. Þeir hafa ekki tapað síðan að liðið missti niður góða forystu á móti Aftureldingu í lokaleik sínum í janúarmánuði. KA var 19-15 yfir þegar seinni hálfleikurinn var hálfnaður en Mosfellingar unnu síðustu fjórtán mínútur leiksins 10-5 og þar með leikinn með einu marki. Síðan þá hefur KA liðið ekki tapað leik og norðanmenn hafa náð alls í tíu stig í febrúar með því að vinna fjóra leiki og gera tvö jafntefli. Ekkert lið hefur náð í fleiri stig í febrúar en KA er með stigi meira en bæði Stjarnan og Haukar. Í febrúar hefur KA-liðið unnið ÍR, ÍBV, Þór Ak. og Hauka og síðan gert jafntefli við FH og Val. Í leikjunum á móti FH og Val þá björguðu KA-menn stiginu með frábærum endakafla og með því að skora fjögur síðustu mörk leiksins. Flest stig liða Olís deildar karla í handbolta í febrúar: KA 10 stig Stjarnan 9 stig Haukar 9 stig FH 8 stig Selfoss 8 stig Valur 5 stig Grótta 5 stig Fram 5 stig Afturelding 4 stig ÍBV 3 stig Þór Ak. 2 stig ÍR 0 stig Flestir sigrar í Olís deildar karla í febrúar: KA 4 Stjarnan 4 Haukar 4 Selfoss 4 FH 3 Fæst töp í Olís deildar karla í febrúar: KA 0 FH 0 Stjarnan 1 Haukar 1 Valur 2 Grótta 2 Fram 2
Flest stig liða Olís deildar karla í handbolta í febrúar: KA 10 stig Stjarnan 9 stig Haukar 9 stig FH 8 stig Selfoss 8 stig Valur 5 stig Grótta 5 stig Fram 5 stig Afturelding 4 stig ÍBV 3 stig Þór Ak. 2 stig ÍR 0 stig Flestir sigrar í Olís deildar karla í febrúar: KA 4 Stjarnan 4 Haukar 4 Selfoss 4 FH 3 Fæst töp í Olís deildar karla í febrúar: KA 0 FH 0 Stjarnan 1 Haukar 1 Valur 2 Grótta 2 Fram 2
Olís-deild karla KA Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sjá meira