Ólétt WNBA stjarna segir félagið sitt hafa kúgað sig, spilað með sig og logið að sér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2023 11:30 Dearica Hamby brosandi í leik með Las Vegas Aces liðinu á síðasta tímabili. Gettu/Chris Coduto WNBA meistarar Las Vegas Aces skiptu á dögunum körfuboltakonunni Dearicu Hamby til Los Angeles Sparks en eftir skiptin þá sagði hún frá því hvernig félagið kom illa fram við hana.
Leikmannasamtökin eru komin með málið inn á sitt borð eftir kvartanir Hamby. Hún segir ljóta sögu af því hvernig var komið fram við hana eftir að hún sagði frá óléttu sinni. WNBA star Dearica Hamby claims the Aces "bullied" and "manipulated" her after the team learned she was pregnant. https://t.co/iAzyeKngam— CBS News (@CBSNews) January 24, 2023 Hin 29 ára gamla Hamby sagði Aces hafi ráðist gegn karakter hennar og vinnusiðfræði. „Að vera skipt á milli liða er hluti af faginu en það er ekki hluti af faginu þegar það er logið að þér, þú kúguð, spilað með þig og þú verður fyrir mismunun,“ skrifaði Dearica Hamby. Hamby skrifaði undir tveggja ára samning við Las Vegas liðið í júní. Hún sagði í samfélagsmiðlafærslu sinni að forráðamenn Aces hafi haldið því fram að hún hafi vitað að hún væri ófrísk þegar hún skrifaði undir. „Það er rangt. Mér var sagt að ég væri spurningarmerki og að ég hafi sagt að ég yrði ófrísk aftur og það væri uppi efasemdir um hollustu mína við liðið,“ skrifaði Hamby. Dearica Hamby took to Instagram to address her trade to the Los Angeles Sparks, calling the treatment she received from the Aces "unprofessional."More: https://t.co/PXlV7tCWs0 pic.twitter.com/Wm4lYEDCn0— espnW (@espnW) January 22, 2023 Hamby sagði einnig frá efasemdum hjá forráðamönnum Aces um að hún yrði klár til að spila á tímabilinu en hún ætlar sér að spila á tímabilinu eftir að hún eignast barnið. „Ég faldi ekki neitt fyrir neinum í félaginu en samt sem áður fékk ég að launum fyrir hreinskilni mína, fálæti, vanvirðingu og skeytingarleysi frá þeim sem stjórna félaginu. Ég hef alltaf sett þetta félag í fyrsta sæti síðan á fyrsta degi og ég hafði verið þarna löngu áður en einhver af þeim birtist,“ skrifaði Hamby. Las Vegas Aces varð meistari í fyrsta sinn á síðasta tímabili og var Hamby einn af aðalleikmönnum liðsins með 9,3 stig og 7,1 frákast að meðaltali í deildarkeppninni. Dearica Hamby's resume as a member of the Aces: -WNBA Champion-2x WNBA s Sixth Woman of the Year-2x WNBA All-Star-And of course, the "Hamby Heave": pic.twitter.com/jgOnqovpFV— Kevaney Martin (@KevaneyMartin) January 21, 2023
NBA Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Sigríður Á. Andersen varð Íslandsmeistari Sport Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Enski boltinn Leik lokið: KA-KR 1-1 | Smit stelur fyrirsögnunum enn og aftur Íslenski boltinn Féllu á meðan þjálfarinn sem þeir ráku hélt Blackburn uppi Enski boltinn Fengu myndsímtal frá Ed Sheeran í búningsklefanum Enski boltinn Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum Körfubolti Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Körfubolti „Ég sakna hennar á hverjum degi“ Handbolti Segir „mjög líklegt“ að Guðlaug Edda komist á ÓL í París í sumar Sport Fleiri fréttir Í beinni: Keflavík - Stjarnan | Allt jafnt Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu „Varhugavert er að ætla starfsmanni Stöðvar 2 að hafa brugðið talsvert“ Kyrie kann að loka einvígum og Dallas sló loksins út Clippers DeAndre Kane sleppur við bann og spilar í kvöld „Þetta er ekki boðlegt finnst mér“ Lið Aþenu og Brynjar Karl einum leik frá Subway-deildinni eftir spennutrylli „Þurfum að fá fleiri hjól undir bílinn“ „Það er búið að vera okkar merki í allan vetur að spila vörn“ Uppgjörið: Njarðvík - Valur 69-78 | Deildarmeistararnir læstu vörninni Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta Kastaði bolta í áhorfanda eftir tap Geta unnið fjóra í röð í fyrsta sinn í heilan áratug Jaka áfram í Keflavík næstu þrjú árin „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Knicks og Pacers hefja nýtt einvígi á mánudag Eigendur 76ers gefa miða svo Knicks aðdáendur taki ekki aftur yfir „Vörnin í dag, það er það sem vann þetta“ „Virkilega léleg frammistaða heilt á litið“ Uppgjörið: Njarðvík - Grindavík 66-58 | Njarðvíkingar einum sigri frá úrslitum Emil tekur við Haukum af Ingvari Sjá meira