Viðskipti innlent

Íslandsbanki hagnaðist um 3,4 milljarða á þriðja ársfjórðungi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka. Íslandsbanki

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka eftir skatta nam 3,4 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við 2,1 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi síðasta árs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum þar sem segir að hreinar þóknanatekjur hafi aukist um 12,3 prósent á milli ára sem skýrist af hærri tekjum frá eignastýringu, fjárfestingabankastarfsemi og verðbréfamiðlun, en einnig vegna sölu Borgunar hf. þar sem eyðingarfærslur fyrsta árshelmings voru bakfærðar í kjölfar sölu dótturfélagsins. Hrein fjármagnsgjöld voru 255 milljónir króna.

Stjórnunarkostnaður lækkaði um 8,9 prósent sem skýrist af áframhaldandi kostnaðarhagræðingu og aðgerðum fyrri tímabila. Neikvæð virðisbreyting útlána á þriðja ársfjórðungi nam 1,1 milljarði króna og tengist að mestu leyti áhrifum af COVID-19 faraldrinum og uppfærslu efnahagssviðsmynda, að því er segir í tilkynningunni.

Útlán til viðskiptavina jukust um 37 milljarða króna á fjórðungnum, þar vegur þyngst aukning húsnæðislána að sögn bankans. Innlán viðskiptavina jukust um 17,4 milljarða króna á fjórðungnum, aðallega vegna aukningar í innánum frá einstaklingum og lífeyrissjóðum.

Hagnaður af rekstri Íslandsbanka á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3,2 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár eftir skatt var 2,4 prósent á ársgrundvelli. Hagnaður á fyrstu níu mánuðum síðasta árs nam 6,8 milljörðum krína.

„Minni hagnaður skýrist aðallega af neikvæðri virðisbreytingu útlána að fjárhæð 7,0 ma. kr. en mat á væntu útlánatapi byggist meðal annars á ítarlegu mati á áhrifum COVID-19 faraldursins á útlánasafn bankans. Að auki námu fjármagnsgjöld 2,2 ma. kr. sem má að mestu leyti rekja til óhagfelldra aðstæðna á mörkuðum á fyrsta ársfjórðungi,“ segir í tilkynningunni

„Árið hefur einkennst af þjónustu og lausnum fyrir okkar viðskiptavini sem hafa orðið fyrir mestum áhrifum vegna COVID-19 en um 700 viðskiptavinir hafa fengið frystingu á lánum sínum. Í nýrri efnahagsspá er búist við samdrætti á árinu 2020 en að viðsnúningur með jákvæðum hagvexti verði strax á næsta ári. Við munum halda áfram að vera til staðar fyrir okkar viðskiptavini og munum verða þátttakendur í viðspyrnunni með þeim.

Bankinn var umsjónaraðili með vel heppnuðu hlutafjárútboði Icelandair á fjórðungnum sem kemur til með að tryggja góða undirstöðu fyrir ferðaþjónustuna þegar ferðatakmörkunum léttir. Í aðdraganda útboðsins kom sjálfvirk stofnun viðskipta með fjármálagerninga sér vel en þúsundir viðskiptavina nýttu lausnina við þátttöku í útboðinu,“ er haft eftir Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka í tilkynningunni sem lesa má í heild sinni  hér.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×