Skoraði en mátti þola tap

Willum Þór Willumsson skoraði úr víti.
Willum Þór Willumsson skoraði úr víti. Ljósmynd/BATE Borisov

Shakhtyor Soligorsk er meistari meistaranna í hvítrússneska fótboltanum eftir sigur á BATE Borisov í vítakeppni í meistarabikarnum þar í landi í dag.

Shakhtyor Soligorsk varð hvítrússneskur meistari á síðustu leiktíð og BATE bikarmeistari. 

Eftir markalaust jafntefli réðust úrslitin í vítakeppni, en ekki er framlengt í keppninni. Willum Þór Willumsson kom inn á sem varamaður hjá BATE á 89. mínútu og hann skoraði úr öðru víti BATE. 

Það dugði hins vegar ekki til þar sem Shakhtyor Soligorsk skoraði úr fimm spyrnum á móti fjórum hjá BATE. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert