Viðskipti innlent

Einar hættir með Grillbúðina

Lovísa Arnardóttir skrifar
Einar Long og Árni Stefánsson forstjóri Húsasmiðjunnar.
Einar Long og Árni Stefánsson forstjóri Húsasmiðjunnar. Aðsend

Einar Long, sem rekið hefur Grillbúðina um árabil, hefur ákveðið að setjast í helgan stein. Húsasmiðjan tekur við vörumerkjunum sem seld hafa verið í Grillbúðinni um 17 ára skeið.

„Það hafa verið forréttindi að geta aðstoðað Íslendinga við að grilla síðustu árin, enda erum við meiri grillþjóð en gengur og gerist. Erlendis grilla menn yfirleitt þegar veður er gott en við grillum hvernig sem viðrar. Á þessum tímamótum viljum við hjónin þakka öllum okkar viðskiptavinum fyrir tryggðina í gegnum árin en nú gefst okkur meiri tími til að sinna fjölskyldu og áhugamálum,“ segir Einar í tilkynningu um málið.

Þar kemur einnig fram að helsta áhersla Grillbúðarinnar hafi verið á þýsku Landmann og Enders grillunum ásamt ýmsum tengdum vörum og fylgihlutum. Húsasmiðjan tekur á þessum tímamótum við vörumerkjum.

„Einar hefur verið ákveðinn kyndilberi í íslenskri grillmenningu og það er okkur heiður að taka við Landmann og Enders af honum og bjóða viðskiptavinum okkar upp á enn fjölbreyttara og betra úrval grilla og þeirra aukahluta sem fylgja. Einnig breikkar jafnframt úrval Húsasmiðjunnar í pallahiturunum, eldstæðum og í ýmsum ljósum. Þegar Einar viðraði þá hugmynd að við tækjum við keflinu af honum, var okkur ánægja að segja já,“ segir Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×