Eyjakonur tryggðu sér deildarmeistaratitilinn Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. mars 2023 17:42 Eyjakonur fögnuðu deildarmeistaratitlinum vel og innilega með stuðningsfólki sínu. ÍBV Handbolti ÍBV er deildarmeistari í Olís-deild kvenna í handbolta eftir öruggan 14 marka sigur gegn Selfyssingum í Suðurlandsslag í dag, 41-27.
Þetta er annar titill Eyjakvenna á stuttum tíma, en liðið tryggði sér bikarmeistaratitilinn með sigri gegn Val á dögunum. ÍBV hefur verið lang heitasta lið deildarinnar undanfarna mánuði og er vel að titlinum komið, en liðið hefur nú unnið tuttugu leiki í röð í öllum keppnum. Eyjakonur byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fljótt up fjögurra marka forskoti. Þær hleyptu Selfyssingum í raun aldrei inn í leikinn eftir það þrátt fyrir að gestirnir hafi hangið í ÍBV framan af fyrri hálfleik. Eyjakonur leiddu þó með sex mörkum þegar liðin gengu til búningsherbergja, staðan 21-15. Selfyssingar voru svo aldrei nálægt því að ógna forskoti heimakvenna í síðari hálfleik og þegar rúmar tuttugu mínútur voru enn eftir til leiksloka náðu Eyjakonur tíu marka forskoti. Sá munur átti bara eftir að aukast og niðurstaðan varð öruggur 14 marka sigur ÍBV, 41-27. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir var markahæst í liði ÍBV með 11 mörk gegn uppeldisfélagi sínu, en Katla María Magnúsdóttir var markahæsti leikmaður vallarins með 14 mörk fyrir Selfyssinga. Á sama tíma vann Valur góðan sjö marka sigur gegn HK, 21-28, en Valskonur þurftu að treysta á að Selfyssingar næðu að stela stigi af ÍBV til að halda enn í vonina um deildarmeistaratitilinn. Sigurður: Þetta er risatitill Sigurður Bragason var erðlilega kátur í leikslok.Vísir/Diego „Ég er rosa stoltur,” sagði Sigurður Bragason, þjálfari ÍBV og nýkrýndur deildarmeistari. „Ég er stoltur af teyminu, stoltur af stelpunum, stoltur af fólkinu. Maður er meyr. Þetta er stór bikar. Það segja þjálfarar sem verða deildarmeistarar á meðan hinir segja að þetta skipti engu máli. Þetta er risa titill. Við erum ekki búnar að tapa síðan í október sem er rosalegt afrek. Ég er yfir mig glaður og verð glaður á eftir.” „Það er hægt að fara í svona verkefni með daufa stemningu en þær voru allar ákveðnar að njóta dagsins. Að brosa var grunnreglan, eins í bridds landsliðinu í gamla daga. Hún smitar svo rosalega. Ég ætla að leyfa þeim að taka aðeins á því í kvöld en svo er ein dolla eftir og það er sú stóra. Við erum ekkert hættar.” „Þetta er ákveðinn núllpunktur. Nú byrja allir jafnt og allir klárir en við verðum þarna í baráttunni, pottþétt,” sagði sigurreifur Sigurður.
Handbolti Olís-deild kvenna ÍBV UMF Selfoss Vestmannaeyjar Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Kielce kærir leikinn gegn Magdeburg Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Sjá meira