Hætta við að skrá sig í bakvarðasveit vegna skerðinga á lánum Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 16. október 2020 12:27 Aníta segir að mun fleiri myndu skrá sig á lista ef ekki væri fyrir skerðingar og ófullnægjandi svigrúm. Aníta Runólfsdóttir
Skerðing á námslánum og ófullnægjandi svigrúm háskólanna í yfirstandandi bylgju kórónuveirufaraldursins hefur orðið til þess að fjölmargt ungt fólk hefur hætt við að skrá sig í bakvarðasveitina. Anítu Runólfsdóttur, sjúkraliða í námi, rennur blóðið til skyldunnar en hún segist ekki mega við neinum skerðingum því hún hafi tvö börn á sínu framfæri. Á upplýsingafundi almannavarna í gær biðlaði Alma Möller, landlæknir, til fólks að skrá sig í bakvarðasveitina því þörfin væri mikil. Ekki hefur gengið eins vel að manna bakvarðasveitina í yfirstandandi bylgju og í vor. Í fyrstu bylgju faraldursins skráðu yfir þúsund manns sig í bakvarðasveitina en í þetta sinn hafa rúmlega þrjú hundruð skráð sig. Aníta hefur sterkan grun um að skerðingar á námslánum og ófullnægjandi svigrúm háskólanna í þriðju bylgju valdi því að fólk skráir sig síður á lista. Í fyrstu bylgjunni fengu nemendur annað hvort „staðið“ eða „fallið“ fyrir námskeið. Slíku svigrúmi sé þó ekki fyrir að fara nú. „Ég er heilbrigðismenntuð - er sjúkraliði og í námi í félagsráðgjöf og hefði haft áhuga á að sinna bakvarðasveitinni mun betur og taka meiri þátt þar sem það vantar bæði innan félags- og heilbrigðiskerfisins. Það sem aftrar mér frá því að taka virkari þátt er sú staðreynd að ef ég tek of margar vaktir þá mun það hafa skerðingu í för með sér. Þá tekur skólinn í ekki jafn virkan þátt í að sýna tillit varðandi einkunnir í skólanum.“ Aníta segir að á meðal nemenda sé mikið rætt um þær hindranir sem standi í vegi fyrir því að nemar taki þátt í bakvarðasveitinni. Sem sé mikil synd því fjölmargir hafi áhuga á að leggja hönd á plóg. „Þetta hefur verið til umræðu. Fólk sem er í námi hefur sérstaklega haft orð á því að það vanti virkilega svigrúm til að hægt sé að stökkva í vinnu.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Hagsmunir stúdenta Tengdar fréttir Þriðja legudeildin opnar, gjörgæslurýmum fjölgað og smit á fíknigeðdeild Landspítalinn hyggst opna þriðju Covid- legudeildina og gjörgæslurýmum hefur verið fjölgað að sögn framkvæmdastjóra hjúkrunar. Mikið álag sé á starfsfólki og mikilvægt að geta sótt til bakvarðasveitarinnar. Smit kom upp á fíknigeðdeild í gær. 15. október 2020 19:00 Hvetur fleiri heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig í bakvarðasveitina Alma Möller, landlæknir, hvatti í dag fleiri heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu vegna kórónuveirufaraldursins. 15. október 2020 12:29 Síðustu dagar þungir eftir metfjölda sjúkraflutninga Met voru slegin í tvígang í vikunni þegar kemur að fjölda sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Slökkviliðsstjóri segir að síðustu dagar hafi reynt á mannskapinn. 11. október 2020 12:38 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Sjá meira
Þriðja legudeildin opnar, gjörgæslurýmum fjölgað og smit á fíknigeðdeild Landspítalinn hyggst opna þriðju Covid- legudeildina og gjörgæslurýmum hefur verið fjölgað að sögn framkvæmdastjóra hjúkrunar. Mikið álag sé á starfsfólki og mikilvægt að geta sótt til bakvarðasveitarinnar. Smit kom upp á fíknigeðdeild í gær. 15. október 2020 19:00
Hvetur fleiri heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig í bakvarðasveitina Alma Möller, landlæknir, hvatti í dag fleiri heilbrigðisstarfsmenn til að skrá sig í bakvarðasveit heilbrigðisþjónustu vegna kórónuveirufaraldursins. 15. október 2020 12:29
Síðustu dagar þungir eftir metfjölda sjúkraflutninga Met voru slegin í tvígang í vikunni þegar kemur að fjölda sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu. Slökkviliðsstjóri segir að síðustu dagar hafi reynt á mannskapinn. 11. október 2020 12:38