Gerir ráð fyrir að Omíkron verði ráðandi afbrigðið á Bretlandseyjum á næstu vikum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. desember 2021 12:19 Stjórnendur innan breska heilbrigðiskerfisins hafa hvatt stjórnvöld til að grípa til aðgerða til að hamla útbreiðslu Omíkron en ef marka má Hunter er á brattann að sækja. epa/Andy Rain Breskur smitsjúkdómasérfræðingur segist gera ráð fyrir því að Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar verði orðið ráðandi á Bretlandseyjum á næstu vikum eða mánuði.
Paul Hunter, sérfræðingur í smitsjúkdómum við University of East Anglia, sagði í samtali við BBC Breakfast í morgun að Omíkron væri nú að dreifa sér hraðar en Delta-afbrigðið í Suður-Afríku, þar sem fyrst var tilkynnt um það. „Hvernig það mun dreifa sér í Bretlandi er enn óvíst en ég tel fyrstu merki gefa til kynna að það muni breiða úr sér mjög fljótt og líklega ná Delta og verða ráðandi afbrigðið á næstu vikum eða mánuði,“ sagði Hunter. Hann sagði stóru spurninguna hins vegar hversu skaðlegt nýja afbrigðið væri. Samkvæmt opinberum tölum hafa 246 greinst með Omíkron-afbrigði SARS-CoV-2 á Bretlandseyjum en Hunter segist telja fjöldan raunverulega yfir þúsund. Hann segir ferðatakmarkanir munu hafa einhver en minniháttar áhrif á útbreiðslu afbrigðisins. Hunter sagðist ekki endilega sammála þeirri staðhæfingu að Bretar væru nú nær upphafi faraldursins en endalokum hans en sagði kórónuveiruna komna til að vera. Síðasti kórónuveirufaraldur hefði líklega geisað fyrir 130 árum og sú veira gengi enn manna á milli en væri nú aðeins eins og hefðbundin kvefpest. „Það er líklega sú átt sem þessi faraldur er að þróast í, þannig að við smitumst endalaust af Covid, af nýjum afbrigðum, en þau munu aðallega vara valda venjulegu kvefi.“ BBC greindi frá.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Bretland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Sjá meira