Kjartan Atli kveður Körfuboltakvöld Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. maí 2023 16:21 Kjartan Atli Kjartansson og sérfræðingar í setti fyrir oddaleik Vals og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. vísir/bára Eftir átta ár hefur Kjartan Atli Kjartansson ákveðið að segja skilið við Subway Körfuboltakvöld. Hann stýrir Álftanesi í Subway deild karla á næsta tímabili.
Kjartan Atli tók við stjórnartaumunum í Körfuboltakvöldi þegar þátturinn var settur á laggirnar 2015 og hefur stýrt honum alla tíð síðan. „Ef ég ætti að lýsa þessum átta árum með einu orði væri það skemmtilegt. Teymið í kringum þættina varð fljótlega að vinahópi frekar en hópi af samstarfsfélögum,“ sagði Kjartan sem tók við þjálfun Álftaness fyrir síðasta tímabil og stýrði liðinu upp í efstu deild í fyrsta sinn í sögu þess. Þjálfarinn Kjartan Atli verður í bílstjórasætinu næsta vetur en sjónvarpsmaðurinn í aftursætinu.vísir/hulda margrét „Verkefnið á Álftanesi er líka spennandi og þrátt fyrir að það sé erfitt að kveðja Körfuboltakvöldi horfir maður björtum augum á framtíðina,“ sagði Kjartan. „Ég hlakka til að vera hinum megin við borðið og mun eiga auðvelt með að setja mig í spor þeirra sem spyrja spurninga og gagnrýna.“ Kjartan kveður Subway Körfuboltakvöld með söknuði og þakklæti eftir átta góð ár. „Þetta eru ákveðin tímamót því Körfuboltakvöld hefur skipað stóran þátt í lífi mínu og fjölskyldunnar síðustu ár og maður er auðvitað þakklátur að hafa fengið tækifæri til að stýra þættinum,“ sagði Kjartan. Kjartan Atli á sínum gamla heimavelli í Ásgarði í Garðabæ.vísir/vilhelm „Ég er þakklátur fyrir hversu vel áhorfendur hafa tekið þættinum öll þessi átta ár og sömuleiðis þakklátur fjölskyldunni að taka þátt í verkefninu með mér. Öll fimmtudags- og föstudagskvöld hafa verið dekkuð hjá mér undanfarin átta ár.“ Kjartan og félagar á Álftanesi eru stórhuga fyrir fyrsta tímabil liðsins í efstu deild. Þeir hafa meðal annars samið við landsliðsmanninn Hörð Axel Vilhjálmsson. „Við erum að skrifa körfuboltasöguna á Álftanesi og okkar markmið er að halda áfram að búa til öflugt körfuboltafélag. Það er mikill vöxtur í yngri flokkunum og okkar langtímamarkmið er að halda áfram að efla allt starfið,“ sagði Kjartan. Hann hefur fulla trú að Körfuboltakvöld haldi sínu striki þrátt fyrir að hann sé horfinn úr brúnni. „Að mínu mati kemur alltaf maður í manns stað og það er mikilvægt að sá sem tekur við fái að stýra þættinum eftir sínu höfði. Ég óska eftirmanni mínum alls hins besta og veit að íslenskur körfubolti og íslenskt íþróttasjónvarp mun halda áfram að vaxa,“ sagði Kjartan að lokum.
Tímamót Subway-deild karla UMF Álftanes Körfuboltakvöld Mest lesið Stuðningurinn ómetanlegur: „Farið í dýpstu leyndarmálin“ Sport Gummi Ben og félagar tímamældu leiktafir KR-ingsins Íslenski boltinn Rekinn þrátt fyrir að vera tilnefndur sem þjálfari ársins Enski boltinn Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Handbolti Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Handbolti Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og félögum tókst ekki Fótbolti Stórveldi með gjörólíka hugmyndafræði berjast um sæti í úrslitum Fótbolti Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Handbolti „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Körfubolti Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Körfubolti Fleiri fréttir Fékk yfirburðarkosningu sem varnarmaður ársins Litli Jordan vill alls ekki vera líkt við Jordan OKC áfram taplaust og Boston byrjar vel Ræðir veru sína í rússnesku fangelsi í nýrri bók Aþena upp í Subway-deildina „Gamaldags boxbardagi frá fyrstu mínútu“ „Dómur þarna í restina sem ákveður úrslitin“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 68-67 | Ekki fallegt en það telur Kosinn nýliði ársins með fullu húsi Riley sagði Butler að halda kjafti og lofaði honum ekki nýjum samningi Brunson í fámennan klúbb og Knicks veittu fyrsta höggið „Ótrúlega stoltur að klára mjög sterkt og vel mannað Grindavíkurlið“ „Það er þjálfarinn sem á að stíga upp og finna betri lausnir“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 69-82 | Njarðvík í úrslit Þjálfari Luka og Kyrie framlengir „BLE-bræður eru brjálaðir!“ Áflogaseggir fá ekki að mæta aftur á völlinn Mitchell skaut Cleveland í undanúrslit Austursins „Ef maður fær opin skot þá verður maður að taka þau“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 87-78 | Heimakonur einum sigri frá úrslitum Búið að fjarlægja auglýsingarnar af gólfinu í Smáranum Helena fær sæti í Heiðurshöll TCU skólans Bara þrjú af tíu líklegustu NBA-liðunum komust í aðra umferð Hetja Keflvíkinga hafði aldrei áður skorað svona flautukörfu á ferlinum NBA meistararnir réðu ekki við hinn magnaða Anthony Edwards „Við höldum bara áfram þangað til að leikurinn er búinn“ „Við gleymum okkur á veiku hliðinni“ Darius Morris látinn aðeins þrjátíu og þriggja ára að aldri Uppgjör: Keflavík - Grindavík 84-83 | Ótrúlegur endir og allt jafnt í einvíginu Tryggvi Snær kom inn af bekknum í tapi gegn botnliðinu Sjá meira