Guðlaug Edda segir fjórða mánuðinn þann erfiðasta: Vonin byrjar í myrkrinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2021 10:32 Guðlaug Edda Hannesdóttir þríþrautarkona æfði fyrir Ólympíuleikana í Tókýó í bílskúrnum heima í lítilli laug sem hún keypti í Costco eftir að sundlaugum var lokað vegna Covid-19. Leikunum var á endanum frestað til ársins 2021 og hún datt síðan út eftir að hún meiddist á mjöðm. Vísir/Vilhelm Gunnarsson Þríþrautarkonan Guðlaug Edda Hannesdóttir vinnur markvisst af því að koma til baka eftir efið meiðsli og stóra aðgerð á mjöðm. Það er ekki alltaf dans á rósum í endurkomunni eins og hún segir frá í nýjum pistli. „
Vonin byrjar í myrkrinu, þrjóska vonin um að ef þú bara mætir og reynir að gera hið rétta, þá muni allt ganga upp,“ byrjaði Guðlaug Edda pistil sinn sem hún skrifar á ensku. „Ég vildi óska að eftir þessa mánuði væri endurkoman bros, sólskin og í regnbogans litum en það er víst ekki svo. Ég er enn á ferð með endurkomulestinni eftir aðgerðina. Það er svo margt í mínu lífi sem ég stjórna ekki en ég keyri áfram og trúi að það munu skila sér ef ég reyni að gera rétta hluti á hverjum degi,“ skrifar Guðlaug Edda. View this post on Instagram A post shared by Guðlaug Edda Hannesdo ttir (@eddahannesd) „Fjórði mánuðurinn hefur verið sá erfiðasti hingað til frá aðgerðinni og það eru margar ástæður fyrir því. Ég er að æfa nokkuð eðlilega núna og mjöðmin sem aðgerðin var á er að verða sterkari og sterkari. Það hefur samt verið erfitt að vera ekki í formi og þurfa að æfa ein. Á sama tíma er ég að reyna að safna peningnum fyrir aðgerðinni, ég er að reyna að lifa lífinu og ég er enn að læra að treysta líkamanum mínum á ný,“ skrifar Guðlaug Edda. Það er enn hægt að hjálpa henni að safna fyrir aðgerðinni með því að styrkja hana hér. Það verður samt ekkert að því að hún keppi á síðustu þríþrautarmótum ársins. „Ég var að vonast til þess að geta tekið þátt í móti áður en tímabilið kláraðist en vissi samt að það yrði langsótt. Það var samt stjarnan mín í myrkrinu þegar ég var að komast fyrst af stað eftir aðgerðina. Ég hugsaði kannski of mikið um það. Þó að ég hafi getað æft og sé byrjuð að hlaupa aftur þá hef ég ekki nægan tíma til að koma mér í keppnisform. Ég gerði allt sem ég gat en það er ekki að hægt að flýta sér of mikið í þessu,“ skrifar Guðlaug Edda. View this post on Instagram A post shared by Guðlaug Edda Hannesdo ttir (@eddahannesd) Guðlaug Edda hefur verið við æfingar í Bandaríkjunum en hefur nú tekið þá ákvörðun að koma aftur heim til Íslands til að sækja orku og stuðning frá fjölskyldu sinni og vinum. „Um leið og ég tók þá ákvörðun að keppa ekki heltist yfir mig sorg, þunglyndi, vonbrigði og leiði. Þetta ár hefur ekki verið neitt annað en hörmulegt og ég er útkeyrð. Ég þarf tíma með mínu fólki til að endurræsa mig eftir að hafa eytt öllum tímanum mínum í Bandaríkjunum í aðgerð og endurhæfingu,“ skrifar Guðlaug Edda. „Ég vil þakka öllum fyrir stuðninginn og vonandi tekst mér að sýna mitt besta í mörgum keppnum á næsta ári og kannski keppi ég í nokkrum keppnum hér líka. Takk fyrir árið 2021, ég er tilbúin fyrir 2022. Sjáumst bráðum í Reykjavík,“ skrifar Guðlaug Edda.
Þríþraut Mest lesið Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Íslenski boltinn Í beinni: Keflavík - Njarðvík | Leikur eitt í baráttunni um titilinn Körfubolti Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Slys á æfingu fyrir fjórum árum er enn að eyðileggja fyrir Söru Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Fótbolti Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn UEFA setur pressu á City Football Group Fótbolti Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Enski boltinn Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Handbolti Fleiri fréttir „Manni finnst nýjasti bikarinn alltaf sætastur“ Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Uppgjörið: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylkir Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Í beinni: Keflavík - Njarðvík | Leikur eitt í baráttunni um titilinn Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Þriðji markahæsti landsliðsmaðurinn leggur skóna á hilluna Hafa aðeins meiri trú á Keflavík en Njarðvík í úrslitaeinvíginu Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann „Ef hann á slæmt mót þá endar hann samt í topp tíu“ Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Allegri afklæddist á hliðarlínunni „Sá að þeim leið aldrei illa“ Sjá meira