Stærsta „Covid-þrotið“ til þessa skekur Bretland Kristín Ólafsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 23:31 Topshop var um skeið rekið á Íslandi. Vísir/getty Breska eignarhaldsfélagið Arcadia Group, sem rekur m.a. fataverslanirnar Topshop, Topman og Miss Selfridge, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Breskir fjölmiðlar segja þrotið hið stærsta í bresku efnahagslífi af völdum kórónuveirufaraldursins til þessa.
Um þrettán þúsund starfsmenn Arcadia eiga nú á hættu að missa vinnuna. Engum verður þó sagt upp að svo stöddu og rekstur Arcadia-verslananna heldur áfram á meðan leitað er að kaupendum. Haft er eftir Ian Grabiner, framkvæmdastjóra Arcadia, að dagurinn í dag sé mikill sorgardagur fyrir starfsmenn, birgja og hluthafa félagsins. Kórónuveirufaraldurinn og tilheyrandi lokun verslana hafi verið reiðarslag fyrir reksturinn. Að endingu hafi hindranirnar af völdum faraldursins borið reksturinn ofurliði. Sir Philip Green.Vísir/getty Fram kemur í frétt Guardian að yfirvofandi gjaldþrot Arcadia sé stærsta þrotið af völdum faraldursins í bresku efnahagslífi til þessa; „sem og enn eitt áfall breskrar tískuvöruverslunar, sem þegar stóð völtum fótum“. Þá er haft eftir greinendum í frétt Guardian að Arcadia-merki á borð við Topshop og Topman muni líklega höfða til kaupenda en erfitt geti reynst að selja önnur merki félagsins. Tíu áhugasamir kaupendur Topshop hafa þannig þegar verið nefndir til sögunnar. Arcadia rekur um 450 verslanir á Bretlandseyjum og 22 utan Bretlands, auk fjölda útibúa í verslunarmiðstöðvum og stórmörkuðum. Nokkrar verslanir undir þeirra merkjum voru reknar hér á landi um skeið, til að mynda áðurnefnd Topshop. Eigandi félagsins, Sir Philip Green, hefur verið umsvifamikill í bresku viðskiptalífi, einkum á sviði tískuvöruverslunar. Hann á jafnframt talsverð tengsl við Ísland, einkum í gegnum félagið Baug Group og umsvif þess á tískuvörumarkaði.
Verslun Bretland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Viðskipti innlent Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Viðskipti innlent Sjö vilja taka við af Gunnari Viðskipti innlent Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Viðskipti innlent Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Viðskipti innlent Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Viðskipti innlent Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Viðskipti innlent „Ég var skíthrædd að senda þessa tölvupósta“ Atvinnulíf Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Viðskipti innlent Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Sjá meira