Angjelin dæmdur í sextán ára fangelsi Tryggvi Páll Tryggvason og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 21. október 2021 08:53 Angjelin Sterkaj í dómsal. Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa myrt Armando Beqirai, fjölskylduföður á fertugsaldri, með því að skjóta hann fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar. Til frádráttar kemur tímabilið sem hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 17. febrúar til dagsins í dag. Dómur í málinu var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Ákærðu Claudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi voru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. Friðrik Smári Björgvinsson saksóknari segir niðurstöðuna í máli Angjelin í takti við kröfur ákæruvaldsins. Skoða verði niðurstöðuna í tilfelli hinna þriggja. Hann segir ekki tímabært að tjá sig um það hvort málinu verði áfrýjað. Skoða þurfi niðurstöðuna betur. Greiðir háar miskabætur Angjelin var dæmdur til að greiða Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armandos, fjórar milljónir króna í miskabætur, 27 milljónir vegna missis framfærslu og rúm 500 þúsund vegna útfarar. Var hann einnig dæmdur til að greiða syni þeirra Þórönnu og Armandos 7 milljónir vegna missis framfærslu og þrjár milljónir í miskabætur. Murat Selivrada var sýknaður í málinu, hann mætti í dómsal í morgun. Til vinstri á myndinni má einnig sjá Anton Kristinn Þórarinsson, sem gaf vitnisburð í málinu. Angjelin var dæmdur til að greiða nýfæddri dóttur þeirra þrjár milljónir króna í miskabætur og rétt tæpar átta milljónir vegna missis framfærslu. Þá hefur hann verið dæmdur til að greiða foreldrum Armandos hvoru um sig þrjár milljónir í miskabætur. Hann var einnig dæmdur til að greiða fyrir málsóknarlaun allra verjenda og réttargæslumanns Ákæruvaldið fór fram á að Angjelin Sterkaj, sem hefur játað að hafa orðið Armando Beqirai að bana laugardaginn 13. febrúar, yrði dæmdur í sextán til tuttugu ára fangelsi. Farið var fram á að hinir þrír meðákærðu: Murat Selivrada, Claudia Sofia Coelho Carvalho og Shpetim Qerimi yrðu dæmd hvert um sig fyrir samverknað í manndrápinu, og ef ekki fyrir hlutdeild. Lágmarksdómur fyrir slíkt eru fimm ár. Réttargæslumaður Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armando Beqirai, tveggja barna þeirra og foreldra Armandos fór fram á tæplega 70 milljónir króna í bótagreiðslu frá sakborningum í málinu. Ýmist var um miskabótakröfur að ræða eða kröfur vegna missis á framfærslu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Til frádráttar kemur tímabilið sem hann hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 17. febrúar til dagsins í dag. Dómur í málinu var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Ákærðu Claudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi voru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. Friðrik Smári Björgvinsson saksóknari segir niðurstöðuna í máli Angjelin í takti við kröfur ákæruvaldsins. Skoða verði niðurstöðuna í tilfelli hinna þriggja. Hann segir ekki tímabært að tjá sig um það hvort málinu verði áfrýjað. Skoða þurfi niðurstöðuna betur. Greiðir háar miskabætur Angjelin var dæmdur til að greiða Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armandos, fjórar milljónir króna í miskabætur, 27 milljónir vegna missis framfærslu og rúm 500 þúsund vegna útfarar. Var hann einnig dæmdur til að greiða syni þeirra Þórönnu og Armandos 7 milljónir vegna missis framfærslu og þrjár milljónir í miskabætur. Murat Selivrada var sýknaður í málinu, hann mætti í dómsal í morgun. Til vinstri á myndinni má einnig sjá Anton Kristinn Þórarinsson, sem gaf vitnisburð í málinu. Angjelin var dæmdur til að greiða nýfæddri dóttur þeirra þrjár milljónir króna í miskabætur og rétt tæpar átta milljónir vegna missis framfærslu. Þá hefur hann verið dæmdur til að greiða foreldrum Armandos hvoru um sig þrjár milljónir í miskabætur. Hann var einnig dæmdur til að greiða fyrir málsóknarlaun allra verjenda og réttargæslumanns Ákæruvaldið fór fram á að Angjelin Sterkaj, sem hefur játað að hafa orðið Armando Beqirai að bana laugardaginn 13. febrúar, yrði dæmdur í sextán til tuttugu ára fangelsi. Farið var fram á að hinir þrír meðákærðu: Murat Selivrada, Claudia Sofia Coelho Carvalho og Shpetim Qerimi yrðu dæmd hvert um sig fyrir samverknað í manndrápinu, og ef ekki fyrir hlutdeild. Lágmarksdómur fyrir slíkt eru fimm ár. Réttargæslumaður Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armando Beqirai, tveggja barna þeirra og foreldra Armandos fór fram á tæplega 70 milljónir króna í bótagreiðslu frá sakborningum í málinu. Ýmist var um miskabótakröfur að ræða eða kröfur vegna missis á framfærslu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Morð í Rauðagerði Dómsmál Reykjavík Tengdar fréttir Dómur í Rauðagerðismálinu kveðinn upp Uppfært klukkan 8:52:Angjelin Sterkaj hefur verið dæmdur fangelsi í 16 ár fyrir morðið á Armando Beqirai, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.Ákærðu Claudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi eru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. 21. október 2021 06:41 Farið fram á 16 til 20 ára dóm: „Hrein og klár aftaka“ Síðasti dagur aðalmeðferðar í Rauðagerðismálinu svokallaða fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákæruvaldið hefur farið fram á að Angjelin Sterkaj verði dæmdur til 16 til 20 ára fangelsisvistar. 23. september 2021 10:35 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hættur við að styðja Höllu Hrund Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Innlent Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Innlent Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Innlent Fleiri fréttir Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Vinstri græn aldrei með minna fylgi Þættirnir rími við margt í raunveruleikanum Ógild framboð, flug í lamasessi og draumaferð í Disney „Ég held að Landskjörstjórn þurfi að endurskoða sína lögfræðiþekkingu“ Hættur við að styðja Höllu Hrund Meðferðarstöðinni Vík lokað í sumar Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna Guðrún á Glitstöðum segir vaðið yfir vilja almennings Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Fyrstu tilnefningar til Vigdísarverðlauna Evrópuráðsþingsins kynntar á Alþingi Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Sjá meira
Dómur í Rauðagerðismálinu kveðinn upp Uppfært klukkan 8:52:Angjelin Sterkaj hefur verið dæmdur fangelsi í 16 ár fyrir morðið á Armando Beqirai, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.Ákærðu Claudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi eru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. 21. október 2021 06:41
Farið fram á 16 til 20 ára dóm: „Hrein og klár aftaka“ Síðasti dagur aðalmeðferðar í Rauðagerðismálinu svokallaða fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákæruvaldið hefur farið fram á að Angjelin Sterkaj verði dæmdur til 16 til 20 ára fangelsisvistar. 23. september 2021 10:35