Fórnar því að vera viðstaddur fæðingu sonarins fyrir leiki í úrslitakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2020 11:01 Gordon Hayward kom aftur inn í lið Boston Celtics í síðasta leik og Jayson Tatum var sáttur með það. Getty/Kevin C. Cox
Leikmenn NBA-deildarinnar mega ekki yfirgefa „NBA-bubbluna“ í Disneygarðinum á Flórída. Sumir þurfa því að taka stóra og persónulega ákvörðun þegar þeir eru að verða pabbar í miðri úrslitakeppninni. Boston Celtics leikmaðurinn Gordon Hayward á von á barni með eiginkonu sinni á sama tíma og hann er á fullu með Boston Celtics liðinu í úrslitakeppninni. Eiginkonan hans hefur nú komið einu á hreint. Gordon Hayward hefur misst af mörgum leikjum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í ár vegna meiðsla en hann ætlar ekki að missa af fleirum jafnvel þótt að hann sé að verða faðir á næstunni. Gordon Hayward will not leave the bubble to be present for the birth of his child as previously planned, per @Rachel__Nichols pic.twitter.com/tZA2EkhfiE— Bleacher Report (@BleacherReport) September 20, 2020 Allir leikmenn NBA-deildarinnar eru staddir í svokallaðir „bubblu“ og hafa verið þar í marga mánuði. Leikmenn þurfa að fara í sóttkví fari þeir út úr „bubblunni“ í Disney World. Gordon Hayward er nýkominn til baka eftir mánaðarfjarveru vegna ökklameiðsla. Boston tapaði án hans á móti Miami Heat í fyrstu tveimur leikjunum í úrslitum Austurdeildarinnar en minnkaði muninn í 2-1 í hans fyrsta leik. Það munaði greinilega um endurkomu Gordon Hayward sem var með 6 stig, 5 fráköst, 4 stoðsendingar og 3 stolna bolta í leiknum. Eiginkona Gordon Hayward á von á sér í lok þessa mánaðar. Hayward ætlaði að yfirgefa bubbluna og vera hjá henni en hefur nú breytt um skoðun. Hefði Hayward yfirgefið „NBA-bubbluna“ þá hefði hann örugglega misst af leikjum í úrslitakeppninni. „Nei ég er ekki með hríðir. Þegar ég vil segja frá því að þessi strákur sé kominn í heiminn þá geri ég það. Þangað til vinsamlega hættið að tala um það. Gordan mun ekki yfirgefa bubbluna til að vera viðstaddur fæðinguna svo hættið að spyrja um það líka. Takk fyrir,“ skrifaði Robyn Hayward, eiginkona Gordon Hayward, á Instagram. Gordon og Robyn Hayward eiga saman þrjár stelpur en þetta verður fyrsti strákurinn. Stelpurnar þeirra eru hér fyrir neðan. View this post on Instagram The girls are ready to see their daddy! @gordonhayward A post shared by Robyn Hayward (@robynmhayward) on Jul 31, 2020 at 2:32pm PDT
NBA Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, úrslitakeppni í körfunni og margt fleira Sport Fleiri fréttir Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers PlayAir leiksins var Dedrick Deon Basile Ein af stóru Sólunum gæti fært sig yfir í Stóra eplið Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Magnaður Maxey bjargaði Sixers frá sumarfríi Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni „Breytir einvíginu ansi mikið“ „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Uppgjör: Grindavík - Keflavík 102-94 | Gulir unnu fyrsta bardagann Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Lakers lætur Ham líklega fara Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki LeBron James gæti hafa spilað kveðjuleik sinn „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ „Skákin er bara byrjuð“ Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg „Gæinn væri Alpha hundur í öllum liðum“ Tók sinn tíma að jafna sig Landsliðsmaður blandar sér í umræðuna um umdeilda sigurkörfu Njarðvíkinga Liðsfélagarnir í sumarfríi en hann að vinna tólf tíma á dag á Íslandi Fyrstir áfram en þjálfarinn meiddist alvarlega þegar leikmaður hans lenti á honum „Hver karfa skiptir máli þannig að ég varð smá reiður“ Uppgjör: Grindavík - Njarðvík 79-83 | Grænar stálu heimavellinum í Smáranum Brunson skaut Philadelphia í kaf LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Sjá meira