Miðað við 300 þúsund manna þjóð er ótrúlegt hve góður fótboltinn á Íslandi er Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. október 2020 11:31 Erin McLeod í leik með Stjörnunni gegn ÍBV í lok ágúst. Garðbæingar unnu leikinn, 1-0. vísir/hulda margrét
Erin McLeod, markvörður Stjörnunnar í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta, ræðir um dvöl sína á Íslandi í viðtali við heimasíðu FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins. McLeod kom til Stjörnunnar á láni frá Orlando Pride í Bandaríkjunum um miðjan ágúst. Sú kanadíska hefur leikið átta leiki með Garðbæingum í Pepsi Max-deildinni. Í viðtalinu segir McLeod að hún hafi þurft að spila eftir að hafa glímt við meiðsli í um ár og Ísland hafi komið inn í myndina vegna kærustu sinnar, Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur. „Við heimsóttum Ísland í desember - ég mæli með því að fólk heimsæki landið að sumri til - og þá áttum við viðræður við Stjörnuna, uppeldisfélag Gunnhildar. Svo þegar ég skoðaði þetta, að ég átti möguleika á að koma hingað, það voru fá kórónuveirutilfelli á Íslandi og fékk tækifæri til að kynnast fjölskyldu kærustu minnar, var þetta ekki spurning. Og þetta hefur verið dásamlegt,“ sagði McLeod. McLeod hefur farið á fjögur heimsmeistaramót og tvenna Ólympíuleika með kanadíska landsliðinu.vísir/hulda margrét Hin 37 ára McLeod, sem hefur leikið 118 leiki fyrir kanadíska landsliðið og farið með því á fjölmörg stórmót, talar afar vel um Ísland í viðtalinu, hversu góður fótboltinn hér á landi er og hrósar umhverfinu í kringum hann. „Miðað við 300 þúsund manna þjóð er ótrúlegt hversu góður fótboltinn er. Að mörgu leyti er Ísland stórkostlegt. Ég ber mikla virðingu fyrir því hvernig þetta land lítur, ekki einungis á kvennaíþróttir, heldur kynjamál almennt. Fyrir nokkrum árum var feðrum gert að fara í fæðingarorlof og launamunur kynjanna er einn sá minnsti í heiminum. Það sama er með árangurstengdar greiðslur [íslensku landsliðanna], konur fá það sama og karlar. Það er margt sem önnur lönd, m.a. Kanada, geta lært af Íslandi,“ sagði McLeod. „Ég held að heildarmyndin sé það sem heilli erlenda leikmenn sem koma hingað að spila. Allir tala frábæra ensku, og margir leiðrétta málfræðina mína, og þér líður eins og þú sért heima hjá þér. Þú getur klárað æfingu, keyrt svo í 30-40 mínútur og skoðað stórkostlega náttúru. Ég hef fundið að því meiri áherslu sem ég legg á að ná jafnvægi í vinnu og starfi því betur spila ég.“ Allt viðtalið við Erin McLeod má lesa með því að smella hér.
Pepsi Max-deild kvenna Stjarnan Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Fótbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjá meira